Enski boltinn

Fjórða tap Crewe í röð - Guðjón óánægður með dómgæsluna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðjón Þórðarson, knattspyrnustjóri Crewe.
Guðjón Þórðarson, knattspyrnustjóri Crewe. Nordic Photos / Getty Images

Crewe tapaði sínum fjórða leik í röð í ensku D-deildinni í knattspyrnu í gær. Nú tapaði liðið fyrir Bury á heimavelli, 3-2.

Crewe lenti þrisvar undir í leiknum en sigurmark Bury kom úr vítaspyrnu á 86. mínútu, skömmu eftir að Billy Jones, leikmanni Crewe, hafi verið vikið af velli.

Á lokamínútu leiksins fékk annar leikmaður Crewe, Patrick Ada, að líta rauða spjaldið.

„Ég er búinn að fá mig fullsaddan á dómgæslunni og vil fá að vita hvað eftirlitsdómarinn hafði að segja um þetta," sagði Guðjón í samtali við enska fjölmiðla eftir leikinn.

„Hann gerði of mörg slæm mistök og maðurinn ekki í stakk búinn til að sinna sínu starfi," bætti hann við.

Crewe er nú í fjórtánda sæti deildarinnar með tólf stig, öðrum tólf stigum á eftir toppliði Bournemouth.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×