Fagnaðarfundir í útgáfuhófi 30. október 2009 06:00 Haukur Holm smellti rembingskossi á Sigga storm í útgáfuhófinu.fréttablaðið/vilhelm
Útgáfuhóf var haldið í bókabúð Máls og menningar á Laugavegi til að fagna nýrri bók veðurfræðingsins Sigurðar Þ. Ragnarssonar og eiginkonu hans Hólmfríðar Þórisdóttur. Á meðal gesta var fyrrverandi samstarfsmaður Sigurðar hjá Stöð 2, fréttamaðurinn Haukur Holm, en báðum var þeim vikið úr starfi á dögunum. Einnig mætti í hófið Sævar Jóhannesson sem var sömuleiðis rekinn úr starfi yfirmanns grafíkdeildar hjá Stöð 2. „Þetta voru miklir fagnaðarfundir,“ segir Siggi. „Þetta var eins og fjölskyldan væri að hittast enda erum við búnir að vinna saman lengi.“ Haukur notaði tækifærið og smellti vænum kossi á Sigga, sem hafði gaman af. „Það var rembingskoss þegar við hittumst og af stærstu gerð en hann var þurr hins vegar,“ segir Siggi og hlær. Hann segist vera í skýjunum þessa dagana, enda hafa viðtökurnar við bókinni verið mjög góðar. „Ég get ekki annað en brosað framan í veröldina. Þetta er óvenjuleg bók og það þarf svolitla stund til að átta sig á henni. Ég er að reyna að auka læsi fólks á veður og kenna því að gera veðurathuganir án þess að hafa mikið af tækjum og tólum. Þarna er veður- og náttúruannáll og líka veðurdagbók. Þar treysti ég á að eldri kynslóðin kenni þeim sem eru yngri.“ freyr@frettabladid.is Siggi ásamt eiginkonu sinni Hólmfríði Þórisdóttur sem vann bókina með honum. Pétur Már Ólafsson og Bjarni Þorsteinsson hjá Veröld sem gefur Íslandsveður út. Lilja Hrönn og Helga Guðrún, systurdætur Hólmfríðar Þórisdóttur, mættu í hófið. Bjarnfríður Gunnarsdóttir og Friðrik Jónsson voru á meðal gesta.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Sjá meira