Fjölskyldan frumsýnd í kvöld 30. október 2009 05:00 Átakaatriði úr Fjölskyldunni: Hvað misbýður kvenleggnum í fjölskyldunni svo? Margrét Helga, Nína Dögg, Jóhanna Vigdís og Ellert.Mynd/Grímur/LR
Í kvöld frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur í Borgarleikhúsi nýlegt bandarískt leikverk, Ágúst í Osages-sýslu eftir Tracy Letts, sem í sviðsetningu Hilmis Snæs Guðnasonar er kallað Fjölskyldan. Letts fetar í verkinu í spor eldri bandarískra höfunda og gerir stórfjölskylduna að yrkisefni rétt eins og Miller, Shepard og fleiri öndvegishöfundar vestanhafs gerðu á liðinni öld. Leikritið er fjölskyldusaga Weston-fjölskyldunnar, sem kemur saman þegar faðirinn hverfur. Þegar afkomendur og makar koma saman kynnumst við hinu flókna fyrirbæri fjölskyldunni á okkar tímum. Verkið er sett upp í húsi á þremur hæðum og vísar þannig beint í verk á borð við Sölumaður deyr eftir Miller. Börkur Jónsson gerir leikmynd. Þrettán leikarar taka þátt í verkinu. Tónlistarmaðurinn KK hefur samið tónlist við verkið en hann starfaði síðast hjá LR í Þrúgum reiðinnar. Tracy Letts (1965) settist á fremsta bekk bandarískra leikskálda með verkinu. Fjölskyldan hlaut þrenn eftirsóttustu leiklistarverðlaun Bandaríkjamanna: Drama Desk, Pulitzer og loks Tony-verðlaunin sem besta leikrit ársins 2008. Þýðandi er Sigurður Hróarsson, búninga gerir Margrét Einarsdóttir og lýsing er í höndum Björns Bergsteins Guðmundssonar. Leikarar í sýningunni eru Sigrún Edda Björnsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Pétur Einarsson, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Nína Dögg Filippusdóttir, Hanna María Karlsdóttir, Theodór Júlíusson, Hallgrímur Ólafsson, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Guðrún Bjarnadóttir, Ellert A. Ingimundarson og Rúnar Freyr Gíslason. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Lífið „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Tónlist Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Lífið Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Tónlist „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ Lífið Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Lífið Fleiri fréttir Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Sjá meira