Sveitarfélög áforma nýja viljayfirlýsingu við Alcoa 27. september 2009 19:24 Bakki stendur nálægt Húsavík. Mynd/ Pjetur.
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að endurnýja ekki viljayfirlýsingu við Alcoa virðist engu breyta um undirbúning álvers á Bakka því sveitarfélögin áforma í staðinn að skrifa upp á nýja viljayfirlýsingu við álfyrirtækið. Þá hefur stjórn Landsvirkjunar samþykkt að undirbúa stofnun félags með aðild Alcoa um orkunýtinguna.Iðnaðarráðherra kynnti forstjóra Alcoa á Íslandi í gær þá niðurstöðu ríkisstjórnarinnar að viljayfirlýsingin yrði ekki framlengd og ber öllum, sem til þekkja, saman um að andstaða vinstri grænna við frekari álversuppbyggingu réði þar mestu um.Viljayfirlýsingin, sem brátt er úr sögunni, er milli ríkisstjórnarinnar, sveitarfélagsins Norðurþings og Alcoa. Í staðinn boðar iðnaðarráðherra nýja viljayfirlýsingu um orkunýtingu milli ríkisstjórnarinnar og viðkomandi sveitarfélaga. Sveitarfélagið Norðurþing áformar síðan í beinu framhaldi, samkvæmt heimildum fréttastofu, að gera nýja viljayfirlýsingu við Alcoa um álver á Bakka. Þannig verður í raun aðeins formbreyting án þess að undirbúningur nýs álvers þurfi að stöðvast.Stjórnarsamþykkt Landsvirkjunar í síðasta mánuði styrkir enn frekar áformin en þar var forstjóra falið að undirbúa stofnun félags með Þeistareykjum og Alcoa um nýtingu orkunnar í Þingeyjarsýslum. Hugmyndin er að inn í félagið verði færður sá kostnaður sem aðilar þess hafa lagt og munu leggja í undirbúningsvinnu. Með því verður unnt að verðleggja framlag hvers og eins, sem auðveldar það að kaupa einhvern út síðar meir eða að hleypa öðrum að.
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Kærastinn var á staðnum Erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Sjá meira