Ný flugstöð við hlið afgreiðslu Flugfélagsins til skoðunar 9. nóvember 2009 18:51
Sá valkostur að reisa nýja innanlandsflugstöð í Reykjavík við hlið núverandi Flugfélagsafgreiðslu, í stað samgöngumiðstöðvar norðan Loftleiðahótels, er til skoðunar hjá verkefnisstjórn. Samgönguráðherra vonast til að niðurstaða fáist sem fyrst svo framkvæmdir geti hafist í vetur.Ekkert bólar á framkvæmdum og raunar vita menn ekki ennþá hvar samgöngumiðstöðin mun rísa, þótt framkvæmdalisti stöðugleikasáttmálans í vor miðaði við að vinnan færi á fullt í haust. Mest hefur verið horft á staðsetningu norðan Loftleiðahótels en þegar Reykjavíkurborg í sumar færði legu götunnar Hlíðarfótar, sem verið er að leggja þessa dagana, taldi verkefnisstjórn svo þrengt að samgöngumiðstöðinni að hún kæmist illa fyrir á lóðinni.Verkefnisstjórnin hefur því einnig verið að skoða þann kost að byggja fremur nýja innanlandsflugstöð milli núverandi afgreiðslu Flugfélags Íslands og flugskýlis félagsins, sem myndi einnig þjóna rútuumferð til Leifsstöðvar, en yrði að öðru leyti ekki samgöngumiðstöð.Kristján L. Möller samgönguráðherra segir að hingað til mest verið unnið út frá því að reisa miðstöðina norðan við Loftleiðahótelið. Flugrekstraraðilar hafi bent á það að vinna mætti þetta á ódýrari hátt með minni byggingu á núverandi svæði Flugfélagsins. Þessa tvo valkosti sé verið að vinna með.Hann vill ekkert segja um hvor kosturinn teljist nú líklegri. Hann vonist bara til að niðurstaða fáist svo menn geti komist sem fyrst af stað við að byggja þarna samgöngumiðstöð, sem sé landi og þjóð til sóma, og að hægt verði að leggja af þá skúra sem í dag kallast flugstöð á Reykjavíkurflugvelli.En hvenær gætu smiðshöggin farið að heyrast? Næsta vor, eða jafnvel í vetur, svarar ráðherrann.
Mest lesið „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Innlent „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Innlent Tenerife-veður víða á landinu Innlent Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart Erlent Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Erlent „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Innlent Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen Innlent Þrjú mál á dagskrá á síðasta þingfundinum Innlent Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Innlent Erfitt að geta ekkert gert nema horfa á kofann brenna Innlent Fleiri fréttir Erfitt að geta ekkert gert nema horfa á kofann brenna „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Tenerife-veður víða á landinu Þrjú mál á dagskrá á síðasta þingfundinum „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Fagna áttatíu ára afmæli millilandaflugs Íslendinga Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Leita logandi ljósi af nýju svæði undir kirkjugarð á Selfossi Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Barátta við illvígan sjúkdóm, furðuleg uppátæki fanga og svakalegar hitatölur Maðurinn sem var stunginn í Mjóddinni liggur enn þungt haldinn Gámurinn á bak og burt Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Sjá meira