Innlent

Hvítá brúuð vestan Flúða

Ný stórbrú yfir Hvítá í uppsveitum Árnessýslu er meðal verkefna sem Vegagerðin býður út á næstu dögum til að skapa aukna atvinnu. Sérstök áhersla verður lögð á mannaflsfreka brúarsmíði sem og smærri verk sem henta minni verktökum.

"Smíða fleir brýr" er dagskipunin sem Vegagerðin hefur fengið en brúarsmíði kallar á hlutfallslega flest störf í vegagerð. Þar vekur mesta athygli ákvörðun um nýja 270 metra langa brú yfir Hvítá í Árnessýslu við Bræðratungu ásamt átta kílómetra vegagerð sem tengja mun þorpin Flúðir og Reykholt, sem Kristján Möller samgönguráðherra segir að verði boðin út á næstu dögum.

En fyrst þarf að skera af sex milljarða og frestast meðal annars Sundabraut, þverun fjarða í Gufudalssveit, Dettifossvegur, Norðfjarðargöng og brú á Hornafjarðarfljót.

Grænt ljós er hins vegar komið á Vestfjarðaveg milli Vatnsfjarðar og Kjálkafjarðar, Vopnafjarðarveg, veginn um Skriðdal, sem þýðir smíði þriggja brúa, Hvítárbrúna, og hringtorg og undirgöng á Reykjanesbraut við Reykjanesbæ. Þá verða mörg verkefni á höfuðborgarsvæði sett í gang, breikkun Vesturlandsvegar í Mosfellsbæ bæði í Ullarnesbrekku og við Hulduhóla, framlenging Arnarnesvegar austast í Kópavogi og nýr Álftanesvegur, auk margra smærri verka á stofnbrautum höfuðborgarsvæðis sem henta litlum verktökum, að sögn samgönguráðherra.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×