Upplýsir ekki hvort Eykt hafi stutt sig Magnús Már Guðmundsson skrifar 19. febrúar 2009 17:38 Óskar Bergsson
Óskar Bergsson, formaður borgarráðs, upplýsir ekki hvort verktakafyrirtækið Eykt hafi stutt sig í prófkjörsbaráttu Framsóknarflokksins árið 2006. Óskar telur nauðsynlegt að leikreglur kjörinna fulltrúa séu skýrar. Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans, spurðist fyrir um tengsl Óskars við Eykt í tilkynningu í morgun. Jafnframt spurði Ólafur hvort að Óskar hafi þegið beinar greiðslur frá félaginu eða öðrum hagsmunaaðilum í byggingariðnaði. Óskar staðfestir að hann hafi fengið styrki frá fyrirtækjum og einstaklingum í prófkjörsbaráttu sinni líkt og flestir frambjóðendur í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna árið 2006. Kemur úr byggingariðnaðinum ,,Ég staðfesti það að í prófkjörsbaráttu minni, auk þess að ég lagði fram eigið fé, lögðu einstaklingar og fyrirtæki mér lið án þess að ég upplýsi nákvæmlega hverjir það hafi verið eða hversu mikil fjárframlög hafi verið um að ræða frá hverjum og einum," segir Óskar aðspurður hvort Eykt eða aðrir hagsmunaaðilar í byggingariðnaði hafi stutt hann í prófkjörsbaráttunni. Eins og fram kemur á vefsíðu Reykjavíkurborgar starfaði Óskar hjá Eykt á árunum 1989 til 1993. ,,Ég er húsasmiður og húsasmíðameistari. Þannig að minn uppruni kemur úr byggingariðnaði." Það séu tengsl hans við hagsmunaaðila í byggingariðnaði. Telur siðareglur nauðsynlegar Borgarstjórnarflokkur Framsóknarflokksins hefur haft til meðferðar siðareglur sem lagðar voru fram í borgarráði í desember. Samkvæmt þeim eiga kjörnir fulltrúar að forðast hagsmunaárekstra og gæta þess að fara ekki út fyrir umboð sitt í störfum sínum. Óskar reiknar með því að borgarstjórnarflokkurinn skili af sér umsögn um siðareglurnar í næstu viku. Hann á síður von á því að framsóknarmenn geri veigamiklar athugasemdir við þær. „Það er algjörlega nauðsynlegt fyrir alla aðila að leikreglur séu skýrar."
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira