Prófkjör Sjálfstæðisflokksins: Ólöf Nordal býður fram í nýju kjördæmi 21. febrúar 2009 12:57 Ólöf Nordal reynir fyrir sér í nýju kjördæmi.
Ólöf Nordal, sem er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi þar sem eiginmaður hennar er forstjóri Alcoa, býður sig nú ekki fram í heimabyggð fjölskyldunnar, og ætlar að taka þátt í prófkjöri flokksins í Reykjavík. Vekur þetta athygli í ljósi þess að það er hefð fyrir því að bjóða sig fram í heimakjördæmum. Jón Magnússon, fyrrverandi þingmaður Frjálslynda flokksins, er einn þeirra tuttugu og níu sem bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í næsta mánuði. Illugi Gunnarsson alþingismaður nýtur mests fylgis til að leiða flokkinn í Reykjavík samkvæmt könnun. Jón Magnússon gekk nýverið úr þingflokki Frjálslynda flokksins en mikill ófriður hefur verið í kringum hann allt frá því hann gekk til liðs við flokkinn árið 2006. Hann gekk til liðs við þingflokk Sjálfstæðismanna í síðustu viku en á árum áður var Jón flokksbundinn Sjálfstæðismaður og leiðtogi í ungliðahreyfingu flokksins. Framboðsfrestur vegna prófkjörs flokksins í Reykjavík rann út í gær og höfðu þá 29 skráð sig til leiks, ellefu konur og átján karlar. Sex af níu núverandi þingmönnum flokksins í Reykjavík bjóða sig fram, en þau Geir H. Haarde, Björn Bjarnason og Guðfinna S. Bjarnadóttir eru ekki í endurkjöri. Þá býður Gréta Ingþórsdóttir fyrrverandi aðstoðarmaður Geirs í forsætisráðuneytinu sig fram, en nú situr Ragnheiður E. Árnadóttir á þingi fyrir flokkinn í Suðvesturkjördæmi, sem einnig var aðstoðarmaður Geirs áður en hún fór á þing. Einnig vekur athygli að Ingi Björn Albertsson býður sig fram í prókjörinu. Hann var fyrst kosinn á þingi fyrir Borgaraflokkinn sem faðir hans Albert Guðmundsson stofnaði á sínum tíma þegar hann klauf sig út úr flokknum eftir að hafa neyðst til að segja af sér sem fjármálaráðherra. Ingi Björn sat á þingi frá 1987 til 1991 og hafði í millitíðinni klofið sig út úr Borgaraflokknum og stofnað þingflokk Frjálslynda hægriflokksins áður en hann endaði svo í þingflokki Sjálfstæðisflokksins, sem hann sat á þingi fyrir til 1995. Mun fleiri taka þátt í prófkjörinu nú en fyrir kosningarnar 2007, þá kepptu 19 manns um sæti á framboðslistum flokksins í Reykjavík en nú eru þeir 29 eins og áður sagði. Illugi Gunnarsson er með afgerandi forystu í fyrsta sætið, samkvæmt könnun Capacents Gallup, sem Morgunblaðið greinir frá í dag. Samkvæmt henni vilja 32,8 prósent þeirra sem ætlað að kjósa flokkinn í kosningum Illuga í fyrsta sætið, en 16,9 prósent vilja Guðlaug Þór Þórðarson fyrrverandi heilbrigðisráðherra í leiðtogasætið.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Sjá meira