Önnur þáttaröð af Rétti í tökur 23. október 2009 03:30 Tökur hefjast á annarri þáttaröð af Rétti í byrjun nóvember. Fréttablaðið/gva „
Ég held að fyrsta serían hafi sýnt það og sannað að hún hefði ákveðna spádómsnáðargáfu,“ segir Sigurjón Kjartansson, einn handritshöfunda sjónvarpsþáttanna Réttur. Hann vísar þar til þess að í fjórða þætti fyrstu þáttaraðarinnar var tekið fyrir mansalsmál en fyrsta mál þeirra tegundar er nú fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og ámóta mál kom nýverið upp í Reykjanesbæ. Tökur á annarri þáttaröð hefjast í byrjun nóvember en það reynist heldur erfitt að draga eitthvað bitastætt upp úr Sigurjóni um efni þáttanna. Hann tekur þó skýrt fram að efnahagshrunið muni ekki leika stórt hlutverk í þáttunum, nógu margar heimildarmyndir hafi þegar verið gerðar um það efni. „En auðvitað er stemningin aðeins breytt þótt lögfræðistofur hafi ekki beint þurft að standa í hópuppsögnum, lögmenn hafa ekki verið neitt sérstaklega blankir í þessu árferði.“ Handritshöfundurinn hefur eytt drjúgum tíma í héraðsdómi til að afla sér upplýsinga og fá hugmyndir. Hann sat meðal annars í dómsal þegar dómur var kveðinn yfir syni Ásgeirs Þórs Davíðssonar, eiganda Goldfinger, en tekur skýrt fram að hvorki það mál né einhverjar tilvísanir í það rati á skjá landsmanna. Sigurjón segir það ekki neitt partístarf að sitja niðri héraðsdómi. „Nei, það er oft erfitt að halda sér vakandi og maður sér það líka á dómurunum, þeir eru geispandi úti um allt. Annars er langskemmtilegast þegar lögfræðingar á borð við Svein Andra og Brynjar Níelsson láta í sér heyra, þá er gaman.“
Mest lesið Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Lífið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Lífið Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Bíó og sjónvarp Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Bíó og sjónvarp 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Fleiri fréttir Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Sjá meira