Óttar Norðfjörð á spænsku í tuttugu löndum 6. nóvember 2009 06:00 Óttar m. Norðfjörð Samningar hafa náðst um að gefa tvær bækur Óttars út í hinum spænskumælandi heimi. fréttablaðið/völundur
Samningar hafa náðst á milli Sögur útgáfu og spænska bókaforlagsins Duomo Ediciones um útgáfu á Sólkrossi og Hnífi Abrahams eftir Óttar M. Norðfjörð á spænsku. „Þetta er mjög öflugur útgefandi," segir Tómas Hermannsson hjá Sögum. Samningurinn, sem náðist á bókamessunni í Frankfurt, er einstakur fyrir þær sakir að ekki er aðeins miðað við útgáfu bókanna á Spáni, heldur í öllum hinum spænskumælandi heimi, sem þýðir útgáfu í allt að tuttugu löndum. Að sögn Tómasar fær Óttar sjálfur langmestan peninginn sem felst í samningnum. „Fyrir höfunda skiptir þetta rosalegu máli. Það gerir þeim kleift að lifa á því að skrifa ef þeir ná því að vera gefnir út í mörgum löndum. Hvert land er kannski ekkert rosalegt en þegar höfundurinn er kominn til nokkurra landa fer að vera grundvöllur fyrir hann að lifa á þessu." Fyrirhugað er að Sólkross komi út á spænsku jólin 2010. Duomo hyggst leggja mikið í markaðssetningu á bókinni því miklar vonir eru bundnar við hana, enda eru norrænir krimmahöfundar vinsælir um þessar mundir. Hnífur Abrahams kemur síðan út 2011. Duomo Ediciones er í eigu ítalska útgáfurisans Gruppo editoriale Mauri Spagnol, sem er meðal þeirra allra stærstu á Ítalíu, og rekur til að mynda níu bókaforlög. Hnífur Abrahams hefur áður komið út í Hollandi og Sólkross hefur nú þegar verið seldur til Þýskalands, Austurríkis og Sviss. Hér heima hefur Hnífur Abrahams selst í um sex þúsund eintökum og Sólkross í um þremur þúsundum. Nýútkomin bók Óttars nefnist Paradísarborgin. - fb
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Sjá meira