Veski og skór Anitu vekja athygli 6. nóvember 2009 06:00 Taskan og skórnir Anita var í skóm sem vöktu mikla athygli á góðgerðarsamkomu í Beverly Hills nýverið. Þá þótti veskið augljóslega smart.nordicphotos/getty
Íslenska leikkonan Anita Briem hefur verið dugleg við sækja viðburði í Hollywood enda er slíkt alveg bráðnauðsynlegt þegar fólk er að koma sér á framfæri í hinni stóru Hollywood. Anita var meðal gesta í boði sem góðgerðarsamtökin Big Brothers/Big Sisters hélt á Beverly Hills-hótelinu í miðborg Hollywood. Þar var meðal annars valin besta unga tilvonandi stórstirnið og maður ársins valinn. Samtökin hafa verið starfandi í Bandaríkjunum í heila öld og hafa það að leiðarljósi að hjálpa ungu fólki sem býr við þröngan kost að ná takmarki sínu. Anita var að sjálfsögðu mynduð af ljósmyndara Getty Images en þær myndir birtast á opinberri vefsíðu myndaveitunnar og er aðgengileg öllum helstu fjölmiðlum heims. Hins vegar virðist ljósmyndarinn hafa kolfallið fyrir handtöskunni sem Anita bar og skónum hennar því þetta tvennt var myndað alveg sérstaklega. Ekki kemur fram hvaðan skórnir og taskan eru en þóttu augsýnilega nokkuð smart. Anita er nú að ljúka við að leika í kvikmyndinni Dead of the Night á móti sjálfu Ofurmenninu, Brandon Routh. Myndin er byggð á vel þekktri ítalskri myndasögu og hefur af þeim sökum hlotið nokkra umfjöllun meðal myndasögunörda.freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Sjá meira