Lífið

Ari Eldjárn gerir gríndisk

2010 Verður árið Ari Eldjárn úr hópnum Mið-Ísland gefur út Grín skrín, geisladisk með gamanmálum sínum.
2010 Verður árið Ari Eldjárn úr hópnum Mið-Ísland gefur út Grín skrín, geisladisk með gamanmálum sínum.

Platan Grín skrín með gamanmálum Ara Eldjárn kemur út í dag og verður til í Eymundsson. Þar eru grínatriði sem Ari hefur verið að troða upp með á þessu ári, bæði í útvarpi og á sviði. „Þarna eru nokkrir sketsar, meðal annars Bubbi á færibandi, og heilt uppistand. Þar er fjallað um Björgvin G. Sigurðsson, Búsáhaldabyltinguna, Hr. Hafnarfjörð, leðurhomma, Bubba í Idol 1980, Þursaflokkinn í Playstation og fleira,“ segir Ari.

„Þetta er svo fersk plata að nýjasti sketsinn er þriggja daga gamall. Hann gengur undir nafninu Jarðarför aldarinnar og fjallar um auglýsingagerðarmann sem hefur unnið hjá FM í tuttugu ár og fær það verkefni að gera auglýsingu fyrir erfidrykkju gamals manns. Ég sendi nokkrum kunningjum mínum hann til skoðunar og svo var hann allt í einu bara kominn út um allt á netinu daginn eftir. Sjálfum Svala á FM fannst hann svo fyndinn að hann hringdi í mig og bauð mér í viðtal. Ég er bara á leiðinni.“

Ari er hluti af grínteyminu Mið-Ísland, sem er það sniðugasta sem hefur verið að gerast í grínmálum landsins lengi. Ari er líka einn af þeim sem skrifa Skaupið í ár og nú er hann búinn að gefa út disk. Hann hefur meira að segja verið í Kastljósinu með gamanefni sitt! Er hægt að toppa þetta?

„Þetta er allavega eitthvað,“ segir hann, „en ég held samt að 2010 verði meira ár. Ég ætla að vera mjög virkur enda er mikið af fólki sem er í góðu stuði fyrir grín.“ Hópurinn Mið-Ísland treður upp á Batteríinu (áður sadó-masóklúbburinn Ýmir) á föstudagskvöldið og þar koma fram ásamt Ara þeir Bergur Ebbi, Dóri DNA og Jóhann Alfreð auk þess sem Þorsteinn Guðmundsson og Hugleikur Dagsson verða sérstakir gestir. Ari kynnir svo Grín skrínið í verslun Eymundsson í Kringlunni á laugardaginn kl. 16.- drg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.