Lífið

Nýjar stórstjörnur

Bradley Cooper
Bradley sló í gegn í smellinum The Hangover nú í ár. Hann lék áður í kvikmyndinni He‘s Just Not That Into You og var orðaður við mótleikkonu sína Jennifer Aniston. Cooper hefur þó undan­farið átt í sambandi við leikkonuna Renee Zellweger.
Bradley Cooper Bradley sló í gegn í smellinum The Hangover nú í ár. Hann lék áður í kvikmyndinni He‘s Just Not That Into You og var orðaður við mótleikkonu sína Jennifer Aniston. Cooper hefur þó undan­farið átt í sambandi við leikkonuna Renee Zellweger.
Á vefsíðu Forbes er spáð fyrir um stjörnur næsta árs. Árið 2009 var einstakt ár fyrir nýstirnin Robert Pattinson og Kirsten Stewart sem léku saman í kvikmyndinni Twilight sem sló svo eftirminnilega í gegn. Forbes spáir því þó að tveir meðleikarar þeirra verði brennheitir á nýju ári.

Zach Galifianakis Þessi skeggjaði grínleikari sló í gegn í hinum óvænta smelli The Hangover. Þar fór hann með hlutverk hins hálfgeggjaða Alans. Á næsta ári leikur hann ásamt Steve Carell í gamanmyndinni Dinner For Schmucks.
Kevin James James er líklega þekktastur fyrir hlutverk sitt í gamanþáttunum King of Queens þar sem hann fer með hlutverk hins seinheppna Dougs Heffernan. James sló þó ekki í gegn á hvíta tjaldinu fyrr en í kvikmyndinni Mall Cop, en hann skrifaði handritið að myndinni, framleiddi hana og fór með aðalhlutverkið.


Anna Kendrick Þessi unga leikkona fer með hlutverk bestu vinkonu Bellu í Twilight-seríunni en hún vakti enn meiri athygli sem mótleikkona George Clooneys í gamanmyndinni Up in the Air og hefur verið nefnd besta leikkona í aukahlutverki fyrir leik sinn í þeirri kvikmynd.
Taylor Lautner Taylor Lautner sló eftirminnilega í gegn sem varúlfurinn Jacob í Twilight-seríunni og á stóran aðdáendahóp meðal táningsstúlkna víða um heim. Lautner var nýlega ráðinn til að fara með hlutverk Max Steel í samnefndri mynd sem er væntanleg í kvikmyndahús árið 2011.
Carey Mulligan Mulligan hefur verið orðuð við Óskarinn eftir leik sinn í bresku kvikmyndinni Education, en þar fer hún með hlutverk ungrar skólastúlku sem fellur fyrir eldri manni. Hún fer einnig með hlutverk í kvikmynd Olivers Stone um Wall Street auk þess sem hún mun leika á móti Keiru Knightley í nýrri kvikmynd.
Zoe Saldana Saldana fór með hlutverk Uhuru í kvikmyndinni Star Trek fyrir nokkru og vakti þar þó nokkra athygli meðal manna. Hún fer einnig með hlutverk í nýrri kvikmynd James Cameron, Avatar, þar sem hún leikur bláa geimveru.
Chris Pine Chris Pine lék á móti Zoe Saldana í kvikmyndinni Star Trek, en þar fór Pine með hlutverk hins fræga kapteins Kirk. Myndin sló í gegn víða um heim og gerði Pine að stjörnu yfir nótt. Hann leikur á móti Denzel Washington í nýrri kvikmynd Ridley Scott, Unstoppable.
Christoph Waltz Þessi þýski leikari sló í gegn sem nasistaforinginn Hans Landa í kvikmynd Quentin Tarantinos, Inglourious Basterds. Waltz hefur verið orðaður við Óskarsverðlaunin fyrir hlutverk sitt sem Hans og í kjölfarið hafa dyrnar að Hollywood opnast fyrir honum. Hann fer með hlutverk í stórmyndinni The Green Hornet á næsta ári.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.