Innlent

Grásleppunetin fóru á haugana

þórður vormsson
þórður vormsson

„Það er undarlegt ef menn telja sig geta hent verðmætum,“ segir Þórður Vormsson, fyrrum grásleppusjómaður. Hann krefur nú sveitar­stjórn Voga á Vatnsleysuströnd um 82 þúsund þar sem bærinn fleygði 41 grásleppuneti hans þegar hreinsunarátak fór fram síðsumars. Netin voru í körum utan við atvinnuhúsnæði á staðnum.

„Ég hef farið yfir þetta með Þórði en málið er að það var haft samráð við hann áður en netin voru tekin,“ segir Róbert Ragnars­son bæjarstjóri. Þar ber þeim ekki saman og segist Þórður ætla að setja lögfræðing í málið. „Ég var búinn að selja netin fyrir 82 þúsund krónur og kaupandinn ætlaði að sækja þau en tveimur dögum áður var þeim fleygt.“ - jse




Fleiri fréttir

Sjá meira


×