Framsóknarmenn klofnir í Seðlabankamáli 23. febrúar 2009 11:35 Birkir Jón og Höskuldur.
Viðskiptanefnd náði ekki ljúka umfjöllun sinni um Seðlabankafrumvarpið á fundi sínum í morgun en til stóð að þriðja umræða um málið hæfist í dag. Fulltrúar Framsóknarflokksins í nefndinni, þeir Birkir Jón Jónsson og Höskuldur Þórhallsson, klofnuðu í afstöðu sinni. Birkir Jón greiddi atkvæði með tillögu ríkisstjórnarflokkanna um að afgreiða málið úr nefnd en það gerði Höskuldur ekki. Höskuldur greiddi atkvæði með tillögu minnihluta nefndarinnar sem gengur út á að málið bíði í nefndinni uns nefnd á vegum Evrópusambandsins hefur sett fram tillögur um eftirlitsaðila á fjármálamarkaði. Búist er við að þær tillögur líti dagsins ljós á miðvikudaginn kemur.,,Þess vegna fannst okkur borðleggjandi að bíða og sjá hvað nefndin hefði að segja," sagði Birgir Ármannsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við fréttastofa. ,,Þetta er þungavigtarnefnd. Formaður hennar er fyrrverandi forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.",,Okkar upplýsingar herma að seðlabankar og staða þeirra sé mjög þarna í forgrunni," segir Birgir um tillögur ESB-nefndarinnar.Birgir segir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi frá upphafi sagt að nálgunin í frumvarpinu væri of þröng. ,,Það væri verið að einblína á skipuritið en ekki aðrar lagabreytingar sem gætu verið til þess fallnar að styrkja Seðlabankann sem eftirlitsaðila." Ekki náðist í Álfheiði Ingadóttur, formann viðskipanefndar, né Birki Jón eða Höskuld.
Tengdar fréttir Seðlabankafrumvarpið enn til umræðu Þriðja og síðasta umræðan um Seðlabankafrumvarpið fer fram á Alþingi á dag. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagðist í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær reikna með því að Alþingi samþykki ný lög um Seðlabanka Íslands á allra næstu dögum. 23. febrúar 2009 10:08 Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Fleiri fréttir Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sjá meira
Seðlabankafrumvarpið enn til umræðu Þriðja og síðasta umræðan um Seðlabankafrumvarpið fer fram á Alþingi á dag. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagðist í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær reikna með því að Alþingi samþykki ný lög um Seðlabanka Íslands á allra næstu dögum. 23. febrúar 2009 10:08