Segir fólk í átthagafjötrum í borginni 23. febrúar 2009 03:00 Elliði Vignisson Bæjarstjórinn var á fundi með útgerðarmönnum í Vestmannaeyjum í gær. Hann segir að stjórnvöld gerðu vel ef þau hættu að ögra stöðugleikanum í sjávarútvegi. Mynd/óskar friðriksson
Nú í kreppunni hefur áhugi fólks á því að búa á landsbyggðinni stóraukist og nú þegar fjölgar ungu fólki í nokkrum byggðum þar sem slíku hefur ekki verið að fagna í áraraðir. Þetta segja Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, Ólafur Hr. Sigurðsson, starfsbróðir hans frá Seyðisfirði, og Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps. Öryggi og fjölskylduvænt samfélag er eitt það helsta sem fólkið leitar eftir, segja þeir, auk þess sem margir vilja snúa baki við þeim gildum sem ráðið hafa ríkjum á suðvesturhorninu. „Ég held að það felist ákveðin tækifæri fyrir fólk í því undarlega umhverfi sem við búum við einmitt núna,“ segir Ómar Már. „Og það felst í því að hér [á landsbyggðinni] eru mannlífs- og atvinnulífshættir reistir á betri grunni heldur en það sem hefur verið að byggjast upp á svokölluðum þenslusvæðum.“ En ekki geta allir sem vilja flust út á landsbyggðina; Elliði segir fjölmarga sitja í átthagafjötrum í borginni. „Fólkið hefur elt fjármagnið og atvinnuna sem öll hefur verið á höfuðborgarsvæðinu en nú þegar bólan er sprungin situr það uppi með ofurskuldsetta eign svo að það er í raun í átthagafjötrum í borginni.“ Ómar segir að ríkið þurfi að styðja betur við bakið á sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum á landsbyggðinni. „Við höfum heyrt mikla umræðu um nýsköpun en því miður virðast orð og æði ekki fara þar saman,“ segir hann. Elliði og Ólafur hafa hins vegar hug á öðruvísi stuðningi. „Veigamesti stuðningurinn sem við gætum fengið frá ríkinu væri að fá frið til að byggja upp okkar atvinnuvegi án þess að eiga það sífellt á hættu að fótunum verði kippt undan því,“ segir Elliði. „Það er óþolandi að vinna í sjávarútvegi þegar sífellt er verið að ögra þeim forsendum sem fyrir honum eru.“ Á hann þá meðal annars við umræður um eignarupptöku á kvóta og veiðileyfagjöldum. „Stundum er aðgerðarleysi af hálfu ríkisins það skásta,“ segir Ólafur. „Það sést vel á fyrirtækjum sem eru alfarið í eigu ríkisins, eins og RARIK og Pósturinn. Þar gilda græðgissjónarmið sem reytt hafa af landsbyggðinni út í það óendanlega í nafni óeðlilega mikillar arðsemi. En það sjá allir hvernig þess háttar græðgi hefur reynst þjóðinni.“ jse@frettabladid.is
Mest lesið Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Innlent Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Erlent Fleiri fréttir Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Sjá meira