Innlent

Sólheimajökull geldur afhroð

Styttist um 134 metra milli ára samkvæmt mælingum í fyrrahaust.Mynd/oddur sigurðsson
Styttist um 134 metra milli ára samkvæmt mælingum í fyrrahaust.Mynd/oddur sigurðsson

„Sólheimajökull var í haust 134 metrum styttri en árið áður og hefur aldrei frá því mælingar hófust 1930 beðið annað eins afhroð á einu ári,“ segir Oddur Sigurðsson í Fréttabréfi Jökla­rannsóknarfélags Íslands.

Í grein sinni í fréttabréfinu segir Oddur jökla landsins stöðugt hopa og gerir grein fyrir niðurstöðum mælinga síðasta haust.

„Jöklar styttust á 37 mælistöðvum, fimm gengu fram og einn stóð í stað. Jafnt og þétt gengur á jöklana og þeir eru nú vandfundnir sem standa framar en þeir gerðu fyrir fjórum öldum. Hvarvetna birtist nú undan jöklunum land sem menn hafa ekki séð síðan í kaþólskum sið,“ segir í grein Odds.

Samkvæmt Oddi styttist Steinholtsjökull mest allra jökla milli ára eða um heila 387 metra. „Það kemur til af því að aurþakin rönd í mælingarlínu hefur ekki getað bráðnað eins og aðrir hlutar jökulsins. Nú hefur röndin slitnað frá og skilar þá allt sér á eðlilegra ról.“

Örfáir jöklar sækja í sig veðrið. Meðal þeirra eru Skeiðarárjökull og Heinabergsjökull. Einnig Reykjafjarðarjökull en það eru þó aðeins taldar dauðateygjur framhlaups því sjálfur jökulsporðurinn sé að rýrna. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×