Innlent

Borgin byggði piparkökubæinn að nýju

„Mannvirkin“ skipta þúsundum og fermetrarnir líka. mynd/björgólfur hávarðsson
„Mannvirkin“ skipta þúsundum og fermetrarnir líka. mynd/björgólfur hávarðsson
Piparkökubærinn í Bergen, sem er sá stærsti í heimi, var eyðilagður af ölvuðum manni sem ekki gat gefið neina skýringu á framferði sínu. Í bænum voru 1.960 mannvirki sem þöktu þúsundir fermetra, hann var byggður af tólf þúsund íbúum borgarinnar; fjölskyldum, leikskólabörnum og starfsmönnum fyrirtækja.

Þegar ljóst var að öll þessi vinna var að engu orðin vegna drykkjuláta, upphófst ein mesta leit í sögu Bergen. Gerð var skýlaus krafa um að skemmdarvargurinn fyndist og fyrirtæki settu fé til höfuðs hans.

Maðurinn fannst, reyndist vera 22 ára ónefndur karlmaður, sem sagðist ekkert muna. Andinn í borginni breyttist þó fljótt úr hefndarþorsta yfir í hinn sanna jólaanda.

Opnun piparkökubæjarins var einfaldlega frestað um þrjár vikur og ákveðið að byggja hann upp aftur frá grunni. Aldrei hafa fleiri lagt fram krafta sína og með samstilltu átaki voru byggðir kastalar, kirkjur, hús, brýr og bátar. Einnig nokkrar bílaferjur, farþegaskip og olíuborpallar. Já, og svo auðvitað miðbær Bergen og allar hans frægustu byggingar.

Bærinn sem nú hefur risið er sá stærsti í áratuga sögu þessarar norsku jólahefðar. Á laugardag höfðu 60 þúsund manns heimsótt piparkökubæinn og dregið að sér höfugan ilminn af sírópi, engifer og kanil. Ef heldur fram sem horfir verða slegin aðsóknarmet og syndir drukkins manns eru löngu gleymdar. - shá



Fleiri fréttir

Sjá meira


×