Kreppan bítur á hvolpum Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar 2. júní 2009 11:49 Tekið hef ég hvolpa tvo... Hreiðar Karlsson eigandi Hundahótelsins með tvo hvolpanna. Mynd/ úr einkasafni
Töluvert hefur verið fjallað um fjölda katta sem eru án eigenda í kjölfar kreppunnar. Hundarnir fara ekki heldur varhluta af áhrifum kreppunnar. „Þetta er búið að vera að gerast upp á síðkastið," segir Hreiðar Karlsson sem á og rekur hundahótelið að Leirum á Kjalarnesi ásamt konu sinni. Á hundahóteli Hreiðars eru nú átta óskilahundar. Þar af eru fjórir hvolpar. „Hvolparnir fundust í pappakassa og fullorðinn hundur bundinn við staur hjá þeim. Það er líklegast pabbi þeirra," segir Hreiðar en hundarnir voru skildir eftir í hlaðinu á Kattholti. „Þeir voru bara skildir eftir og keyrt í burtu. Eigandinn hefur líklegast ekki treyst sér til að annast þá og því skilið þá eftir þar sem hann var viss um að þeir væru öruggir," segir Hreiðar. Um er að ræða Border Collie blendinga sem eru á að giska sjö eða átta vikna gamlir að sögn Hreiðars. Allir hundar sem lögreglan tekur á lausagöngu á höfuðborgarsvæðinu eru sendir á hundahótelið að Leirum. „Við geymum þá í sjö sólarhringa. Ef eigandinn hefur ekki haft samband þá reynum við að ráðstafa þeim annað. Ef það hinsvegar gengur ekki neyðumst við hreinlega til þess að lóga dýrunum," segir Hreiðar. Hreiðar segir að það hafi gengið vel að koma hundum til nýrra eigenda. „Þetta hefur gengið í svona 99% tilvika. Ef þeir eru skemmdir erum við hinsvegar ekki að senda þá beint aftur út í samfélagið," segir Hreiðar en bendir á að það eigi ekki endilega við um eldri hunda. „Eldri hundar, tveggja þriggja ára, eru yndisleg dýr. Það er ekki erfitt að kenna gömlum hundi að sitja," segir hann og hlær. Þeir sem hafa áhuga á að koma munaðarlausum hundi til bjargar og taka upp á sína arma er bent á að hafa samband við Hreiðar í síma 698-4967 eða senda tölvupóst á hundahotel@hundahotel.is.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Vísbendingar um aukna kjörsókn Innlent Fleiri fréttir Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Sjá meira