Innlent

Kreppan bítur á hvolpum

Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar
Tekið hef ég hvolpa tvo... Hreiðar Karlsson eigandi Hundahótelsins með tvo hvolpanna.
Tekið hef ég hvolpa tvo... Hreiðar Karlsson eigandi Hundahótelsins með tvo hvolpanna. Mynd/ úr einkasafni
Töluvert hefur verið fjallað um fjölda katta sem eru án eigenda í kjölfar kreppunnar. Hundarnir fara ekki heldur varhluta af áhrifum kreppunnar.

„Þetta er búið að vera að gerast upp á síðkastið," segir Hreiðar Karlsson sem á og rekur hundahótelið að Leirum á Kjalarnesi ásamt konu sinni. Á hundahóteli Hreiðars eru nú átta óskilahundar. Þar af eru fjórir hvolpar. „Hvolparnir fundust í pappakassa og fullorðinn hundur bundinn við staur hjá þeim. Það er líklegast pabbi þeirra," segir Hreiðar en hundarnir voru skildir eftir í hlaðinu á Kattholti. „Þeir voru bara skildir eftir og keyrt í burtu. Eigandinn hefur líklegast ekki treyst sér til að annast þá og því skilið þá eftir þar sem hann var viss um að þeir væru öruggir," segir Hreiðar. Um er að ræða Border Collie blendinga sem eru á að giska sjö eða átta vikna gamlir að sögn Hreiðars.

Allir hundar sem lögreglan tekur á lausagöngu á höfuðborgarsvæðinu eru sendir á hundahótelið að Leirum. „Við geymum þá í sjö sólarhringa. Ef eigandinn hefur ekki haft samband þá reynum við að ráðstafa þeim annað. Ef það hinsvegar gengur ekki neyðumst við hreinlega til þess að lóga dýrunum," segir Hreiðar.

Hreiðar segir að það hafi gengið vel að koma hundum til nýrra eigenda. „Þetta hefur gengið í svona 99% tilvika. Ef þeir eru skemmdir erum við hinsvegar ekki að senda þá beint aftur út í samfélagið," segir Hreiðar en bendir á að það eigi ekki endilega við um eldri hunda. „Eldri hundar, tveggja þriggja ára, eru yndisleg dýr. Það er ekki erfitt að kenna gömlum hundi að sitja," segir hann og hlær.

Þeir sem hafa áhuga á að koma munaðarlausum hundi til bjargar og taka upp á sína arma er bent á að hafa samband við Hreiðar í síma 698-4967 eða senda tölvupóst á hundahotel@hundahotel.is.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×