Innlent

Fluttur slasaður til Reykjavíkur - grunaður um ölvun

Karlmaður á fimmtugsaldri slasaðist þegar bifreið sem hann ók skall á brúarstólpa í Ljósavatnsskarði um áttaleytið í gærkvöld.

Slökkvilið þurfti að þurfti klippum til að ná honum úr bílnum. Maðurinn var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri en þaðan var hann fluttur til Reykjavíkur. Þar fengust ekki upplýsingar um líðan hans.

Maðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis, að sögn lögreglunnar á Húsavík. Bifreiðin er óökufær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×