Innlent

Vill að ríkið styðji við rekstur Strætó bs.

Námsmönnum verður ekki boðið upp á fríar strætóferðir næsta vetur vegna hagræðingar í rekstri. Stjórnarformaður Strætó vill að ríkið styðji við rekstur félagsins, meðal annars með niðurfellingu opinberra gjalda.

Sjö sveitarfélög standa að rekstri Strætó bs. sem rekið var með 352 millljóna króna halla á síðasta ári.

Stjórn félagsins vinnur nú að því að reyna finna leiðir til að draga úr þessum hallarekstri.

Félagið mun þannig ekki bjóða námsmönnum upp á fríar strætóferðir næsta vetur líkt og gert hefur verið undanfarin tvö ár.

„Ég held að það sé alveg ljóst að það verður eitthvað framhald á verkefninu. Við erum ekki að fara að hætta því alveg. Það hefur verið alveg frítt og við erum að fara yfir hvernig við getum gert breytingar á því og áfram komið til móts við námsmenn, sem við viljum svo sannanlega gera. En ég efast um að við getum haft það frítt áfram," segir Jórunn Frímannsdóttir, stjórnarformaður Strætó bs.

Námsmenn eru ósáttir við þessa ákvörðun. Jóhann Már Helgason, framkvæmdastjóri Stúdentaráðs HÍ, bendir á að námsmenn fái aðeins um 100 þúsund krónur á mánuði í námslán. Atvinnuleysisbætur séu hins vegar 150 þúsund krónur á mánuði og því sé ekki óeðlilegt að námsmenn fái áfram frítt í strætó.

Jórunn vill að stjórnvöld hjálpi til meðal annars með niðurfellingu opinberra gjalda. Félagið hefur nú þegar óskað eftir fundið með stjórnvöldum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×