Innlent

Arðgreiðslum OR ekki haggað

Arðgreiðslur frá Orkuveitu Reykjavíkur nýtast til rekstrar leikskóla, grunnskóla og annarra samfélagslegra verkefna segir borgarstjóri. Fréttablaðið/Vilhelm
Arðgreiðslur frá Orkuveitu Reykjavíkur nýtast til rekstrar leikskóla, grunnskóla og annarra samfélagslegra verkefna segir borgarstjóri. Fréttablaðið/Vilhelm

Full samstaða er um það í borgarstjórn að breyta ekki umdeildum arðgreiðslum Orkuveitu Reykjavíkur til eigenda sinna, segir Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri.

Hún segist sammála þeirri niður­stöðu stjórnar Orkuveitunnar að greiða eigendum sínum 800 milljóna króna arð vegna ársins 2008. Það er helmingi lægri upphæð en undanfarin ár, og 1,7 prósent af eigin fé fyrirtækisins um áramót. Reykjavíkurborg á stærstan hlut í Orkuveitunni, en önnur sveitar­félög eiga minni hlut.

Fulltrúar starfsmanna hafa gagnrýnt að greiddur sé arður á sama tíma og laun starfsmanna hafi lækkað. Þess hefur verið krafist að launalækkunin verði dregin til baka.

Hanna Birna segir málin ótengd. Öll sveitarfélögin sem eigi Orkuveituna séu í þeirri stöðu að þurfa að draga úr launakostnaði, eins og mörg fyrirtæki í einkageiranum. Að sjálfsögðu geri sveitarfélögin sömu kröfur til fyrirtækis í þeirra eigu.

Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, hvatti í gær til viðræðna við stéttar­félög starfsmanna Orkuveitunnar vegna málsins. Hann gagnrýndi í yfirlýsingu samskiptaleysi borgaryfirvalda vegna málsins. - bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×