Innlent

Krefjast aðgerða vegna vanda heimilanna

Framsýn vill að gripið verði til aðgerða til að forða heimilum frá gjaldþroti. Mynd/ Vilhelm.
Framsýn vill að gripið verði til aðgerða til að forða heimilum frá gjaldþroti. Mynd/ Vilhelm.
Framsýn- stéttarfélag Þingeyinga tekur heilshugar undir með Hagsmunasamtökum heimilanna um að þegar í stað verði gripið til aðgerða til að forða fjölda heimila í landinu frá gjaldþroti. Þetta segir í ályktun sem Framsýn sendi frá sér í kvöld.

Segir þar að Framsýn treysti því að ný ríkistjórn láti það verða eitt af sínum fyrstu verkum að verja stöðu heimilanna sem mörg hver séu komin í gríðarlegan greiðsluvanda.

Bendir Framsýn á að samkvæmt gögnum frá Seðlabanka Íslands hafi um 42% heimila verið með bága eða neikvæða eiginfjárstöðu um síðustu áramót. Allt bendi til þess að þessi þróun muni halda áfram nema gripið verði þegar í stað til viðeigandi ráðstafana til að forða þúsundum fjölskyldna frá miklum erfiðleikum.

„Framsýn kallar eftir tafarlausum almennum leiðréttingum á gengis- og verðtryggðum lánum heimilanna. Það er skylda stjórnvalda að standa vörð um grunneiningar samfélagsins sem eru heimilin í landinu. Brettum upp ermar og hefjum uppbyggingarstarf í stað þess að tala endalaust um mikilvægi aðgerða án efnda," segir í ályktun Framsýnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×