Óþekkt augnablik loks skilin 12. september 2009 06:00 ljósmyndir Ein þeirra mynda sem menn kunna ekki skil á en almenningur er hvattur til að greina.
Í dag verður verður ljósmyndasýningin Óþekkt augnablik opnuð í Þjóðminjasafni Íslands. Sýningin er greiningarsýning á ljósmyndum frá tímabilinu 1900-1960 úr Ljósmyndasafni Íslands í Þjóðminjasafni. Leitað er aðstoðar safngesta við greiningu myndefnis. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Ljósmyndasafnið leitar til almennings eftir hjálp við greiningu á óþekktum minnum í hinu mikla safni ljósmynda sem þar er geymt. Hafa á fyrri leitarsýningum komið fram mikilvægar upplýsingar um myndefni, menn, staði og tíma sem fest hafa verið á mynd. Í hundrað ár hefur Þjóðminjasafn Íslands safnað ljósmyndum. Söfnunin hefur haldist í hendur við þróun ljósmyndunar. Ljósmyndir eru samofnar lífi eigandans, eins konar minningabanki sem hann leitar í. Fólk lætur ljósmyndir ekki af hendi fyrr en þær missa gildi sitt. Þannig voru það fyrst brúntóna harðspjaldamyndir af uppstilltu fólki í sínu fínasta pússi sem bárust safninu til varðveislu. Seinna bættust í sarpinn myndir af bæjum til sveita, götum þorpa, af fólki að störfum úti og inni og íslensku landslagi með sínum fossum og fjöllum. Eftir að atvinnumenn hættu að sitja einir að myndatökum og fólk fór sjálft að skapa sér eigin myndasöfn fóru litlar skyndimyndir að berast. Vinafólkið á ferðalagi, nesti snætt í laut, daglegt líf fjölskyldunnar heima og heiman. Það líður langt frá myndatökunni og þar til mynd verður að safngrip og því er enn lítið af litmyndum í safninu og enn lengra í land þar til símamyndir samtímans munu berast ef þær hverfa ekki bara við endurnýjun farsímans. Stærsti hluti myndasafnanna eru samt ekki pappírsmyndir heldur glerplötur og filmur frá atvinnu- og áhugamönnum. Á þessari sýningu er brugðið upp myndum úr sex slíkum filmusöfnum. Þeim er ætlað að sýna þverskurð af viðfangsefnum ljósmyndaranna og sýna þróun íslensks samfélags á þeirri rúmu hálfu öld sem þær spanna. Jafnframt eru þær gestaþraut þar sem leitað er í smiðju safngesta um þekkingu á því sem myndirnar sýna. Hvar eru myndirnar teknar? Hvaða fólk er á þeim? Í tengslum við sýninguna verður opnað sérstakt vefsvæði á heimasíðu Þjóðminjasafnsins. Þar verður hægt að skoða myndirnar og geta gestir skráð athugasemdir við þær ef þeir þekkja til fólks eða staða á myndunum. Farið verður síðan yfir upplýsingarnar og þær skráðar í gagnagrunn safnsins. Upplýsingar sem safnast með þessum hætti eru safninu einkar mikilvægar því þær setja nafnlausar myndir í nýtt samhengi og segja sögur sem annars hefðu fallið í gleymskunnar dá.- pbb
Mest lesið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Karl Th. Birgisson er látinn Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Fleiri fréttir Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Sjá meira