Nýjum banka fagnað með veisluhöldum 14. júlí 2009 02:00 kaupþing í Lúxemborg Nýr banki hefur tekið yfir starfsemi kaupþings í Lúxemborg og mun bera nafnið Banque Havilland. Nýi bankinn er í eigu Rowland-fjölskyldunnar sem á meðal annars Blackfish Group.
Nýr banki hefur tekið við Kaupþingi í Lúxemborg. Bankinn mun bera nafnið Banque Havilland. Bankinn er í eigu Rowland-fjölskyldunnar sem á meðal annars fjármálafyrirtækið Blackfish Group. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá hinum nýstofnaða banka. Magnús Guðmundsson kemur til með að vera framkvæmdastjóri hins nýja banka en hann var einnig við stjórnvölinn fyrir sölu hans. Hann segir að bankinn fái 320 milljóna evra lán frá yfirvöldum í Belgíu og Lúxemborg til að greiða innstæður. Auk þess sem bankinn fær lán frá innstæðutryggingasjóði í Lúxemborg að fjárhæð 300 milljónir evra. „Þessi lán hefðu aldrei fengist ef yfirvöld í Belgíu og Lúxemborg hefðu ekki trú á þeim aðilum sem kaupa bankann,“ segir Magnús. „Innstæðueigendur Kaupþings í Lúxemborg fá innstæður sínar greiddar að fullu en aðrir kröfuhafar fá 82,5 prósent af upphaflegri kröfu.“ Meðal innstæðueiganda eru Íslendingar sem fá greiddar innstæður að fullu líkt og aðrir kröfuhafar. Magnús Guðmundsson Magnús segir að Rowland-fjölskyldan leggi bankanum til 50 milljónir evra vegna endurskipulagningar hans. Þrír fjölskyldumeðlimir hafa þegar hafið störf hjá bankanum, þar á meðal mun Jonathan Rowland setjast í stjórn félagsins. Stjórnarformaður hins nýja félags er Martyn Konig sem hefur starfað fyrir fjölskylduna í ellefu ár. Auk þess mun Gary Hoffman bankastjóri Northern Rock taka sæti í stjórn bankans. Hoffman var skipaður í það embætti af breska ríkinu við fall bankans á síðasta ári. Magnús segir að það farsæla niðurstöðu að Rowland fjölskyldan hafi keypt bankann. Endurskipulagningin hafi tekið níu mánuði og einn dag og þar hafi reynt á allt sem hugsanlega er hægt að reyna á í endurskipulagningu félags, þar sem öðruvísi var haldið á málum í Lúxemborg en á Íslandi. Hann bendir á að neyðarlög voru sett á Íslandi en í Lúxemborg þurfti að vinna með öllum kröfuhöfum til að finna lausn sem þeir gætu sæst á í stað setningar neyðarlaga. Mikil ánægja ríkir í Belgíu með þessa niðurstöðu mála og var forsvarsmönnum hins nýja banka, Magnúsi auk forsætisráðherra Belgíu boðið til veislu þar sem niðurstöðu málsins var fagnað. Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að bankinn komi til með að einbeita sér að auðugum viðskiptavinum frá Evrópu, Mið-Austurlöndum og Asíu. Bankinn mun áfram veita hefðbundna bankaþjónustu til núverandi og nýrra viðskiptavina auk þjónustu á sviði eignastýringar og einkabankaþjónustu. Rowland-fjölskyldan hefur verið viðloðandi fjárfestingar og fjármálaumsýslu í um 45 ár. bta@frettabladid.is
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Inga segir já Innlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Fleiri fréttir Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar Sjá meira