Einar K: Verið að beita sparisjóðina fantabrögðum Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 14. júlí 2009 16:06 Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Mynd/EOL „
Það er verið að beita sparisjóðina fantabrögðum," segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, inntur eftir viðbrögðum við lögum um fjármálafyrirtæki sem samþykkt voru fyrir helgi. Nokkur styr hefur staðið um lögin, ekki síst um níundu grein þeirra sem heimilar lækkun stofnfjár sparisjóða til jöfnunar taps þeirra. Í neyðarlögum er það skilyrði sett fyrir fjárframlagi ríkissjóðs til sjóðanna að varasjóðir þeirra séu ekki neikvæðir, þ.e. að eigið fé þeirra sé sé ekki minna en sem nemur bókfærðu virði stofnfjárins. Því var gripið til þessarar lagasetningar nú. Einar segist hafa miklar áhyggjur af afleiðingum þessa. Hann segir niðurfærslu stofnfjár vera mikið áfall fyrir bæði fjölskyldur á landsbyggðinni svo og sveitarfélög sem kunna að vera stofnfjáreigendur. Einar lagði ásamt fleirum í þinginu til að sett yrði gólf á niðurfærsluna þannig að gengi bréfa í sparisjóðunum færu aldrei niður fyrir einn, en það var ekki gert. Aðspurður hvort það hefði skipt máli, þar sem margir keyptu bréfin á margföldu gengi, segir Einar: „Það hefði ekki leyst allra manna vanda, en það hefði verið í samræmi við hugmyndafræðina á bak við sparisjóðina." Hann segir rangt að leggja stofnfé sparisjóða og hlutafé banka að jöfnu, líkt og gert hefur verið. Einar vill ekki heldur meina að það sé frjálst val sparisjóðanna að færa niður stofnféð, en samkvæmt lögunum þarf samþykki fundar stofnfjáreigenda hvers sjóðs til að lækka það. „Þegar það er forsenda þess að fá opinbert fé þá eiga sparisjóðirnir engan annan kost en að samþykkja þá skilmála sem þeim eru réttir."
Tengdar fréttir Eygló Harðar: Stofnfjáreigendur stefna í gjaldþrot Í nýju frumvarpi viðskiptaráðherra um fjármálafyrirtæki er gert ráð fyrir því að heimilt verði að lækka stofnfé sparisjóða til jöfnunar taps sem ekki verður jafnað á annan hátt. 1. júlí 2009 11:13 Gylfi: Ekki réttlætanlegt að bjarga bara stofnfjáreigendum „Ef ríkið keypti stofnféð fullu verði væri ríkið að taka á sig tap sparisjóðanna á umliðnum árum," segir Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, um lagafrumvarp sitt um sparisjóðina. Í frumvarpinu er lögð til heimild til að færa niður stofnfé sjóðanna svo þeir geti þegið stofnfjárframlag frá ríkinu. 1. júlí 2009 12:01 Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Innlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Innlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Strandveiðar bannaðar á morgun Innlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Fleiri fréttir „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Sjá meira
Eygló Harðar: Stofnfjáreigendur stefna í gjaldþrot Í nýju frumvarpi viðskiptaráðherra um fjármálafyrirtæki er gert ráð fyrir því að heimilt verði að lækka stofnfé sparisjóða til jöfnunar taps sem ekki verður jafnað á annan hátt. 1. júlí 2009 11:13
Gylfi: Ekki réttlætanlegt að bjarga bara stofnfjáreigendum „Ef ríkið keypti stofnféð fullu verði væri ríkið að taka á sig tap sparisjóðanna á umliðnum árum," segir Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, um lagafrumvarp sitt um sparisjóðina. Í frumvarpinu er lögð til heimild til að færa niður stofnfé sjóðanna svo þeir geti þegið stofnfjárframlag frá ríkinu. 1. júlí 2009 12:01