Innlent

Fáni við breska sendiráðið skorinn niður

Breski fáninn. Þó ekki sá sem tekinn var við breska sendiráðið.
Breski fáninn. Þó ekki sá sem tekinn var við breska sendiráðið.
Breski fáninn sem blaktir vanalega að húni við Breska sendiráðið var skorinn niður í dag samkvæmt heimildum fréttastofu. Fáninn var að sögn skorinn niður á þriðja tímanum í dag til að mótmæla hinu svokallaða Icesave samkomulagi. Samkvæmt sömu heimildum verður fáninn sem tekinn var í dag hengdur upp á íslenska stofnun næstu daga.

Að Gunnars Hilmarssonar, aðalvarðstjóra Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafði málið ekki komið inn á borð til þeirra. Hann sagði jafnframt að búið væri að sleppa þeim fimm manns sem handteknir voru við mótmælin á Austurvelli í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×