Hrikalegar rekstrartölur sveitarfélaga Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. maí 2009 22:30 Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir rekstrarstöðu sveitarfélaga slæma. Hann segir spurninguna þó ekki snúast um gjaldþrot. Mynd/ Anton Brink.
Rekstrartölur sveitarfélaga á landinu eru almennt séð hrikalegar, segir Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitafélaga. Hann óttast þó ekki fjöldagjaldþrot sveitarfélaganna þrátt fyrir erfitt efnahagsástand. Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Árborg, sagði í dag að gjaldþrot sveitarfélagsins blasti við innan tveggja ára ef ekkert yrði að gert. Ragnheiður Hergeirsdóttir bæjarstjóri Árborgar segir hins vegar að staða Árborgar sé svipuð og staða annarra sveitarfélaga. Halldór segist ekki geta tjáð sig um málefni einstakra sveitarfélaga og hann ætli ekki að blanda sér í deilur meirihluta og minnihluta. „En ég myndi segja að almennt séð sé þetta ekki spurningin um gjaldþrot. Miklu frekar sé þetta spurningin um það hvernig þeim sveitarfélögum, sem verða fyrir hvað mestum búsifjum, gengur að fjármagna þann halla sem er kominn og vinna sig í gegnum það," segir Halldór. Halldór segir að rekstrarstöðu sveitarfélaganna megi í mörgum tilfellum skýra með því að erlend lán séu að hækka. „Maður vonar auðvitað að gengisvístialan lækki á næstum árum og að þetta komi eitthvað til baka," segir Halldór. Vilja hagræðingu frekar en hækkun útsvars Halldór segist ekki tilbúinn til að fullyrða hvort farið verði fram á að hámarksútsvar verði afnumið. „Á þessu stigi erum við að vonast til þess að sveitarfélögin geti frekar farið hagræðingarleiðina," segir Halldór. Hann bendir á að það sé almenn skoðun sveitastjórnarmanna að það sé ekki hægt að leggja meiri álögur á íbúa. „Þeir hafa við nóg að glíma þó við aukum ekki álögurnar," segir Halldór. Hann bendir þó á að ekki sé hægt að útiloka neitt. Halldór segir að þegar hafi verið ráðist í ýmsar hagræðingaraðgerðir. Dregið hafi verið úr framkvæmdum, dregið hafi verið úr yfirvinnu hjá starfsmönnum sveitarfélaga, kennslustundum í skólum hafi verið fækkað niður í lögbundnar kennslustundir og fækkað í bekkjum. „Í einhverjum tilfellum er verið að sameina skóla," segir Halldór. Halldór segir það vera skoðun sveitastjórnarmanna að alheimskreppan verði langvinn og sveitarfélögin þurfi því að horfa langt fram í tímann þegar að þjónustustigið sé lækkað. Þó þurfi að standa vörð um grunnstoðir eins og menntakerfið. Halldór bendir á að til greina komi að stytta skólaár grunnskólanna úr 180 dögum í 170. „Það er reyndar skerðing á þjónustu en ég er ekkert viss um að hún sé skaðleg, þannig séð. Þú kemst bara fyrr út í vorið," segir Halldór.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Báti var siglt yfir kajakræðara Langar biðraðir á Keflavíkurflugvelli óásættanlegar „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Sjá meira