Seðlabankastjóri hefði átt að bregðast við ástandinu - ekki bara vara við því 1. mars 2009 13:41 Jón Baldvin Hannibalsson
Jón Baldvin Hannibalsson segir að seðlabankastjóri hafi ekki bara átt að vara við efnahagsástandinu heldur hafi hann átt að bregðast við því. Ef hann hafi ekki haft tækifæri til þess hafi forsætisráðherra eða formenn ríkisstjórnarflokkanna að gera svo. Hann segir viðvaranirnar ekki hafa vantað því allt frá árinu 2006 hafi menn sagt að hættuástand væri framundan og það væri tímaspursmál hvenær kerfið myndi hrynja. Hann segist vera að bjóða sig fram til Alþingis út af evrópumálum. Jón Baldivn var gestur í Silfri Egils á Rúv fyrir stundu. Þar sagðist hann einnig hafa viljað að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefði svarað þeirri spurningu hvort Samfylkingin ætti ekki að gera sömu kröfur til sín, sem hún geri til annarra flokk. „Svari hún þeirri spurningu játandi, þá víkur hún," sagði Jón Baldvin sem hefur ákveðið að bjóða sig fram gegn Ingibjörgu til formanns Samfylkingarinnar. Aðspurður hvort Jóhanna Sigurðardóttir bæri ekki ábyrgð þar sem hún sat í síðustu ríkisstjórn sagðist Jón Baldvin sjálfur hafa setið í samsteypustjórn og þar væru það formenn stjórnarflokkanna sem bæru mesta ábyrgð og hefðu t.a.m neitunarvald gagnvart hvert öðru. „Hún sat þarna í átján mánuði og ber því fulla ábyrgð á því sem gerðist á hennar vakt, það er að íslenska efnahagskerfið hrundi," sagði Jón Baldvin um Ingibjörgu. Aðspurður hvort hann ætti einhvern sjéns í formannsslaginn sagðist Jón Baldvin ekki vita það og hann nefndi blaðamannafund sem Ingibjörg og Jóhanna héldu í gærmorgun. „Þar höfðu þær ákveðið að skipta mér sér verkum um að Jóhanna yrði forsætisráðherraefni og Ingibjörg áfram formaður. Síðan ætla þær að leiða flokkinn í sitthvoru kjördæminu í Reykjavík. Þær eru búnar að ákveða þetta en síðan er boðað til prófkjörs í kjördæminu. Ég hef ekki beðið um neitt sæti og ef ég fer í forval er það kjósenda að ákveða það." Hann benti einnig á að framboð sitt væri sett fram með fyrirvara um að 80 daga stjórnin stæði við loforð sitt með því að breyta kosningalögum og innleiða persónukjör. „Ég veit um margt fólk, ekki bara innan Samfylkingarinnar, sem ég get gert mér vonir um stuðning og þá ekki síst úr atvinnulífinu. Því minn hugur mun snúast um mál málanna sem er evrópusambandið og ég er að bjóða mig fram út af því."
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Fleiri fréttir Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Sjá meira