Fer með Jackson út á land 10. desember 2009 05:30 Söngvarinn Alan Jones verður í rauðu latexi á Jackson-sýningunni.
Söngvarinn Alan Jones, sem hefur að undanförnu tekið þátt í Michael Jackson-sýningunni á Broadway, íhugar að fara einn með sýninguna út á land ásamt lagahöfundinum Örlygi Smára. Fyrst ætla þeir að prufukeyra sýninguna á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi á föstudagskvöld. „Við ætlum að sjá hvernig gengur. Við ætlum að byrja á Spot og síðan er planið að fara með sýninguna um Ísland,“ segir Alan, sem verður á sviðinu í um það bil hálftíma, syngjandi helstu slagara poppkóngsins. „Þetta verður mjög gaman. Ég get ekki beðið,“ segir hann. Stílisti Alans og umboðsmaður, Selma Ragnarsdóttir, hefur hannað fyrir hann nýjan, rauðan latexbúning sem hann ætlar að klæðast á Spot ásamt reyndar fleiri búningum. Þannig vill hann komast sem næst hinu fræga Jackson-útliti þar sem skrautlegir búningar voru sérlega áberandi. Alan hefur í nógu að snúast því fyrir jólin ætlar hann að senda frá sér nýtt lag sem nefnist So Strange. Honum til halds og trausts við upptökurnar eru hljóðfæraleikararnir Börkur og Daði Birgissynir. Að sjálfsögðu er lagið undir áhrifum frá Michael Jackson en einnig gætir þar áhrifa sálarkóngsins James Brown. Síðasta Jackson-sýningin á Broadway fyrir jól verður síðan á laugardaginn. - fb
Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Fleiri fréttir Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Sjá meira