Rannsókn á Daníelsslippsmáli lokið - niðurstöður óbreyttar Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. desember 2009 12:03 Mennirnir voru á þessum bíl kvöldið örlagaríka.
Ríkissaksóknari hefur lokið athugun á erindi aðstandenda tveggja manna sem fundust látnir í Daníelsslipp við Mýrargötu í Reykjavík í mars árið 1985. Höfðu ættingjar mannanna krafist þess með bréfi til ríkissaksóknara í nóvember í fyrra að fram færi rannsókn á andláti þeirra og viðbrögðum embættis ríkislögreglustjóra eftir að aðstandendur hófu athugun sína á málavöxtum, eins og rakið hefur verið í fjölmiðlum. Ítarlega var fjallað um málið í fréttaskýringaþættinum Kompási á sínum tíma. Rannsókn lögreglunnar á sínum tíma beindist að því hvort mennirnir hafi fallið fyrir eigin hendi, eins og aðstæður bentu til á vettvangi, og að dánarorsök væri koloxíðeitrun frá útblæstri bifreiðar sem lík mannanna fundust í. Ríkissaksóknari leitaði eftir því að réttarmeinafræðingur færi yfir krufningarskýrslur, ljósmyndir og önnur gögn og léti í ljós álit á dánarorsök mannanna eftir því sem unnt væri, hartnær 25 árum seinna. Að þessari athugun komu tveir réttarmeinafræðingar sem báðir hafa áralanga reynslu á sviði réttarmeinafræði. Niðurstaða úr þessari athugun er sú að um sjálfsvíg hafi verið að ræða og að mennirnir tveir hafi látist úr koloxíðeitrun sem staðfest var með blóðrannsókn. Engir áverkar sem valdið hefðu meðvitundarleysi hafi fundist við krufninguna og því benti ekkert til annars en að mennirnir hafi verið með meðvitund í bílnum þar til þeir urðu koloxíðeitrun að bráð. Í fréttatilkynningu frá Ríkislögreglustjóra segir að það sé niðurstaða ríkissaksóknara að ekkert tilefni sé til að kveða á um rannsókn á viðbrögðum embættis ríkislögreglustjóra við málaleitan ættingja um aðgang að gögnum málsins eða á vinnubrögðum við rannsókn lögreglunnar á vettvangi og aðgerðum hennar í kjölfarið á sínum tíma.
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira