Erfiður auglýsingamarkaður allt þetta ár 10. desember 2009 05:15 Fram að hausti virtist sem samdráttur á auglýsingamarkaði næmi 35 prósentum, en heldur hefur dregið úr samdrættinum á þriðja ársfjórðungi. Fréttablaðið/Anton
Samdráttur á auglýsingamarkaði á þessu ári gæti numið þriðjungi eða svo, að mati Ara Edwald, forstjóra 365. Hann segir stöðuna heldur hafa batnað í haust og vonar að botni sé náð. Óskar Magnússon, útgáfustjóri Morgunblaðsins, segir auglýsingamarkaðinn hafa verið mjög erfiðan allt þetta ár og frá hruni í fyrra. „En þó eru ýmis teikn á lofti um að eitthvað muni glæðast á næsta ári. Fyrirtæki á borð við bankana eru að koma sér í meiri stellingar en þau hafa getað gert og ég vænti þess að bankarnir þurfi að stunda eðlilega markaðsstarfsemi.“ Óskar segist jafnframt vona að það sama komi til með að eiga við um bílasölu, að þar taki markaður að glæðast eitthvað sem og í fasteignum. „Almennt getum við hjá Árvakri sagt að við þær breytingar sem hér hafa verið gerðar hefur áhugi á blaðinu aukist með ýmsum hætti og það er út af fyrir sig gott. Við teljum okkur því ágætlega sett í samkeppninni ef þetta fer eitthvað að taka við sér.“ Ari Edwald segir að fram undir haustið hafi menn þar á bæ metið sem svo að samdráttur á auglýsingamarkaði næmi um 35 prósentum á þessu ári og kæmi hvað harðast niður hjá prentmiðlum. „En markaðurinn er aðeins að taka við sér. Svo skiptir líka máli að viðmiðunarmánuðirnir eru komnir í að vera mánuðirnir eftir hrun.“ Þá segist Ari líka hafa á tilfinningunni að samdráttur í auglýsingatekjum 365 sé minni en annars staðar. Fjölmiðlar félagsins, Fréttablaðið, Stöð 2 og Vísir, hafi aukið hlut sinn eitthvað og því dregist minna saman en markaðurinn í heild. Almennt verði bati þó hægur. „Við gerum ráð fyrir mjög lítilli raunaukningu auglýsingatekna á næsta ári.“ - óká Ari Edwald
Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira