Skotar unnu í samkeppni um Gömlu höfnina 11. desember 2009 16:30
Arkitektastofa í Edinborg í Skotlandi, Graeme Massie Architects, hlaut fyrstu verðlaun í A-hluta hugmyndasamkeppni sem Faxaflóahafnir sf. efndu til vegna skipulags Gömlu hafnarinnar og Örfiriseyjar í Reykjavík. Samstarfsaðili hennar á Íslandi er ráðgjafarfyrirtækið Alta ehf. Úrslitin voru tilkynnt við athöfn í Víkinni sjóminjasafni nú síðdegis um leið og sigurlaunin voru afhent, 7,5 milljónir króna. Allt í allt veittu Faxaflóahafnir 14 milljónir króna í verðlaun í samkeppninni. Í tilkynningu segir að höfundar tveggja tillagna hafi deild 2.-3. sæti og hlutu hvorir um sig tvær milljónir króna í verðlaun: annars vegar arkitektarnir Björn Ólafs og François Perrot, hins vegar Þorsteinn Helgason, Gunnar Örn Sigurðsson, Páll Gunnlaugsson og Valdimar Harðarson arkitektar FAÍ hjá arkitektastofunni ASK arkitektum ehf. Viðurkenningu/innkaup fyrir athyglisverða tillögu hlaut Arkibúllan ehf., 500.000 krónur. „Samkeppnin var tvískipt. Alls barst 51 tillaga, þar af 12 tillögur í A-hlutann, sem var ætlaður hönnuðum og öðru fagfólki og undirbúin í samvinnu við Arkitektafélag Íslands. B-hlutinn var hins vegar opinn öllum án nokkurra skilyrða og þar bárust 39 tillögur," segir í tilkynningunni. „Átta tillögur hlutu verðlaun í B-hluta hugmyndasamkeppninnar, fjórar fengu 300.000 krónur og aðrar fjórar 200.000 krónur," segir ennfremur og kom það aðstandendum samkeppninnar þægilega á óvart hve margir sýndu viðfangsefninu áhuga með því að senda inn tillögur um leiðir til að auðga mannlíf og efla hafnarsvæðið. „Dæmi um hugmyndir er listaverk sem jafnframt gegnir hlutverki upplýsingamiðils fyrir almenning, fisk- og kjötmarkaður undir þaki á Miðbakka, graffítí-skreyting á útvöldum olíugeymum, leikvöllur með sjóræningjaskipi og sérstök lýsing á Miðbakka." Allar tillögur verða til sýnis í Víkinni sjóminjasafni, Grandagarði 8, til 20. desember. Þar er opið alla virka daga kl. 11:00-17:00 og um helgar kl. 13:00-17:00. Gert ráð fyrir sundlaug á Ægisgarði „Dómnefnd segir að höfundum skosku verðlaunatillögunnar í A-hluta samkeppninnar hafi tekist að styrkja tengsl miðbæjarins og hafnarinnar og tileinka sér meginatriði framtíðarsýnar Faxaflóahafna sf., meðal annars með því að leggja til að umferð um miðbæinn verði færð út fyrir hafnarmynnið. Skýr skil eru á milli blandaðrar byggðar íbúðarhúsnæðis, athafna- og iðnaðarhúsnæðis og vettvangs menningar og viðskipta á svæðinu. Höfundarnir gera meðal annars ráð fyrir viðlegukanti fyrir skemmtiferðaskip, þjónustuhúsi fyrir ferðafólk og hóteli á nýjum stað í miðbænum, austan Tónlistar- og ráðstefnuhússins. Þeir gera og ráð fyrir sundlaug á Ægisgarði, í innhöfninni miðri, að Slippurinn verði áfram á sínum stað og olíubirgðastöðin sömuleiðis."Metnaðarfullar tillögur vísa veginn til framtíðar Júlíus Vífill Ingvarsson segir að markmið samkeppninnar hafi verið að kalla eftir fjölbreyttum og frumlegum hugmyndum um skipulag og nýtingu Gömlu hafnarinnar, svæði sem aldrei hefur verið gert af heildarskipulag. Faxaflóahafnir vonuðust til þess að verðlaunatillögurnar gætu nýst í vinnu við gerð heildarskipulags fyrir höfnina, bæði aðalskipulags og deiliskipulags. Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður dómnefndar, segir að þær vonir hafi ræst. Faxaflóahafnir séu nú með í höndum metnaðarfullar tillögur sem vísað geti veginn í skipulagsmálum svæðisins til framtíðar.
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Fleiri fréttir „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Sjá meira