Leppalúði með stjörnufans 11. desember 2009 06:00 Baggalútur gerist metnaðarfyllri með hverju laginu. Í þriðja laginu, „Leppalúða“, sem verður frumflutt á Rás 2 á sunnudaginn, tjaldar sveitin öllu til og fær Röggu Gísla og Gulla Briem í púkkið.
Gleðigjafarnir í Baggalúti sjá um jólafjörið á Rás 2 um þessar mundir í jóladagatalinu og hluti af þeirri dagskrá er að þeir dæla út vikulegum aðventulögum. Eðli málsins samkvæmt eru tvö lög komin út – „Hvað fæ ég fallegt frá þér“ og „Jólalalagið“ – og á sunnudaginn verður þriðja lagið afhjúpað. Baggalútur er ekki í nokkrum vafa um að þetta sé metnaðarfyllsta aðventulag sveitarinnar til þessa. Það heitir „Leppalúði“ og tvær íslenskar stjörnur leggja sveitinni lið, ofurtrommarinn Gulli Briem og Ragga Gísla. „Gulli Briem úr Mezzoforte er náttúrlega með þetta sánd sem við vorum að leita eftir og því var upplagt að fá hann,“ segir Karl Sigurðsson, söngvari Baggalúts. Jólalög hópsins eru alltaf ábreiður af þekktum erlendum slögurum en Karl segist ekki geta ljóstrað upp hvaða lag verður fyrir barðinu í „Leppalúða“. „Ég get þó sagt að þetta lag er frá 9. áratugnum og margir héldu að inúíta-söngkona syngi það, eða jafnvel hugsanlega Ragga Gísla. Það kom svo upp úr krafsinu að það er karlmaður sem syngur lagið. Okkur fannst hins vegar upplagt að fá Röggu bara til að syngja það með okkur.“ Lagið verður afhjúpað í þætti Guðna Más Henningssonar á sunnudaginn og svo verður það aðgengilegt á baggalutur.is og á gogoyoko.com, þar sem kaupa má lagið í fullum gæðum gegn lágmarksþóknun. Uppselt hefur verið á báða jólatónleika Baggalúts í Borgarleikhúsinu 20. desember frá því í byrjun mánaðar. „Jú, auðvitað hefðum við átt að bæta við einum aukatónleikum enn, en við erum bara ekki nógu metnaðarfullir. Því miður,“ segir Karl. - drg
Mest lesið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Lífið Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið „Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ Tónlist Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Lífið „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Tónlist Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Lífið Fleiri fréttir Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Sjá meira