St. Jósefsspítali lagður niður 7. janúar 2009 14:19
St. Jósefsspítali verður lagður niður og megnið af starfsemi hans flutt til Keflavíkur. Meltingarsjúkdómadeild verður flutt á Landsspítala. Starfsmönnum var tilkynnt þetta á fundi fyrr í dag. Sveinn Einarsson, svæfingarlæknir á St. Jósefsspítala segir flutninginn út í bláinn. Gjörningurinn sé eins og allt sem á undan er gengið. Hagsmunapólitík sem taki ekkert mið af þjónustu við sjúklinga. Hann segir 8000 aðgerðar gerða á spítalanum árlega, kvensjúkdómaaðgerðir, lýtalækningar, almennar skurðaðgerðir og bæklunaraðgerðir. Hann segir starfsfólk spítalans vera meðal þeirra fremstu í sinni röð. Til að mynda sé kvensjúkdómalæknir á heimsmælikvarða á spítalanum, sem geri fjölda grindarbotnsaðgerða á hverju ári. Sveinn segir litlar líkur á því að starfsfólkið kæri sig um að vinna á skurðstofunum í Keflavík, og átelur þau vinnubrögð að hugmyndin hafi ekki verið kynnt betur fyrir því. „Þú flytur fólk ekkert í bara rútu. Það þarf að kynna málið og selja þeim sem eiga að vinna á staðnum hugmyndina," segir Sveinn. Nú klukkan tvö hófst blaðamannafundur heilbrigðisráðherra á Hilton hóteli. Þangað ætlar starfsfólk spítalans að fara og mótmæla flutningunum.
Mest lesið Vön því að hringja í fullorðna karlmenn á fölskum forsendum Innlent Játa frelsisviptingu og rán en hafna manndrápi Innlent Aldrei kynnst neinum sem harkaði jafnmikið af sér Innlent „Ég er fimmtíu kíló, ég get ekki stoppað hann“ Innlent „Hann var hræddur, eiginlega alveg skíthræddur“ Innlent Tilgangurinn að ná í „easy money“ Innlent „Tesla er ekki málið til að standa í svona“ Innlent Yfirmaður heraflans er á móti hernámi og vill semja Erlent Hækkar frítekjumark vegna hækkunar örorkulífeyris Innlent Hættir hjá borgarstjóra og aðstoðar nú ráðherra Innlent Fleiri fréttir Staðan ekki alvarleg í Haukadalsá Loka Bröttubrekku í tvo daga „Tesla er ekki málið til að standa í svona“ Minntust Jesse í Vesturbænum: „Það er mikill söknuður af virkilega góðum dreng“ Skýr mynd dregin upp í dómsal og minningarstund Hækkar frítekjumark vegna hækkunar örorkulífeyris „Hann var hræddur, eiginlega alveg skíthræddur“ Kjaraviðræður Sinfó „stefni í rétta átt“ Stöðupróf verði skylda í öllum skólum strax í vor „Ég er fimmtíu kíló, ég get ekki stoppað hann“ Núverandi staða ekki talin vera alvarleg Vön því að hringja í fullorðna karlmenn á fölskum forsendum Opna Vesturbæjarlaug á morgun en Sundhallargestir þurfa að bíða Tilgangurinn að ná í „easy money“ Jökulhlaupið í rénun Í beinni frá héraðsdómi, unglingadrykkja og áheitakóngur Aldrei kynnst neinum sem harkaði jafnmikið af sér Hættir sem ritstjóri Kveiks Hættir hjá borgarstjóra og aðstoðar nú ráðherra Meirihluti hefur áhyggjur af laxastofninum nema í fjörðunum Jóhann tekur við af Gunnari hjá Landssambandi veiðifélaga Skýrslur teknar af tíu börnum undir sex ára á síðustu 20 árum Lögregla kölluð til vegna einstaklinga sem tjölduðu í skógarrjóðri Betra að borga tryggingarnar en að sitja uppi með allsherjartjón Játa frelsisviptingu og rán en hafna manndrápi Metaðsókn og söfnunarmet slegið 13,3 milljarðar frá Íslandi til Úkraínu: Danska leiðin „ein sú besta“ til að styrkja varnir Evrópu Steindór Örn endurkjörinn formaður Hallveigar Það logaði glatt í Bergþórshvoli á Njáluhátíð í Rangárþingi Skiptar skoðanir um stækkun Þjóðleikhússins Sjá meira