Stjórnvöld íhugi að slíta stjórnmálasambandi við Breta 9. maí 2009 12:01
Stjórnvöld hafa ekki gætt hagsmuna Íslands nægilega vel gagnvart Bretum, að mati formanns Framsóknarflokks. Hann vill að íslensk stjórnvöld íhugi að slíta stjórnmálasambandi við Bretland fallist bresk stjórnvöld ekki á að aflétta beitingu hryðjuverkalaganna. Formaður Sjálfstæðisflokks segist ekki vera bjartsýnn á að hagstæðir samningar náist í Icesave deilunni. Ummæli Gordons Brown, forsætisráðherra Bretlands, á breska þinginu í vikunni voru ekki til þess fallinn að bæta samskipti Íslands og Bretlands sem hafa verið stirð frá því Bretar beittu hryðjuverkalögum gegn Íslandi síðasta haust. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að málið kalli á hörð viðbrögð íslenskra stjórnvalda. „Nú þurfa íslensk stjórnvöld að sýna ákveðni í þessu máoí og allavega hringja í Gordon Brown. Það er náttúrulega hægt hvernig haldið hefur verið á þessu fram að þessu og það er ástæðan fyrir því að hann heldur áfram að færa sig upp á skaftið eins og margir gera þegar þeir komast upp með að ganga alltaf lengra og lengra. Íslensk stjórnvöld hafa ekki tekið á þessu í samræmi sem tilefni var til og þurfa að mótmæla að hörku, bæði gagnvart breskum stjórnvöldum og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum." Landsbankinn hefur enn ekki verið tekinn af hryðjuverkaskrá breskra stjórnvalda. Sigmundur segir ljóst að nú verði Íslensk stjórnvöl að hugleiða að slíta stjórnmálasambandi við Bretland fallist þau ekki á að aflétta beitingu hryðjuverkalaganna. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, segir að Bretar hafi beitt sér gegn samstarfi Óslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins síðastaliðið haust vegna Icesave-deilunnar. Hann segist ekki vera bjartsýnn á að Ísland nái viðunandi samningi vegna Icesave. „Ég er þeirra skoðunar að það hafi miðað alltof hægt í þeim viðræðum sem hrint var af stað í vetur. Þær vísbendingar sem við höfum fengið úr viðræðum við erlendu aðilana eftir að komist var að þessum sameiginlegum viðræðum gefa ekki tilefni til bjartsýni um tekið verið tillit til efnahagslegrar aðstæðna á Íslandi. Utanríkismálanefnd alþingis hélt þeim möguleika galopnum að ef að ekki tækjust viðunandi samningar í þessum viðræðum þá væri málið aftur komið á byrjunarreit," segir Bjarni.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Sjá meira