Popp, rokk og sveitt partí 28. september 2009 02:00 Nóra á Nasa Föstudagskvöldið var hápunktur Rétta. Fréttablaðið/Valli
Tónlistarhátíðin Réttir náði hámarki sínu um helgina. Trausti Júlíusson fylgdist áhugasamur með. Nóra hóf dagskrána á Nasa á föstudagskvöldið. Það heyrðist að þarna var ný sveit á ferð, en þrátt fyrir smá hik og óöryggi komust þau í bandinu ágætlega frá sínu. Efnileg poppsveit sem gaman verður að fylgjast með í framtíðinni. Strákarnir í Sing for Me Sandra voru þéttir og fullir af orku, en mættu vera aðeins djarfari í lagasmíðunum. Á Sódómu skilaði hljómsveitin Miri frábæru setti. Þeir í sveitinni hafa þróað tónleikaformið í allsherjar gleðimessu með tilþrifamikilli spilamennsku og kjarnyrtum kynningum á milli laga.Partívígvöllur á NasaÁ eftir þeim tók Skakkamanage við og hreinlega fór á kostum. Næst var röðin komin að Kimono. Alltaf jafn gaman að fylgjast með gítartilþrifum þeirra Alex og Gylfa og Kjartan er hörku trommuleikari. Kimono er einstök sveit og maður bíður spenntur eftir nýju plötunni. Eftir rokkkeyrsluna á Sódómu lá leiðin aftur á Nasa þar sem Retro Stefson var að klára sitt sett. Á meðan tvö síðustu lögin voru spiluð voru meðlimir FM Belfast að stilla upp á sviðinu og án þess að missa úr takt breyttist Senseni yfir í Lotus og FM Belfast tók við. Mjög flott skipting. Nasa var troðfullt og allsherjar partístemning í gangi. Partívígvöllur. Kvöldið endaði svo með dönsku sveitinni Bodebrixen á Batteríinu. Sjö manns í sérhönnuðum röndóttum búningum með neonljós og uppblásnar blöðrur. Litu svolítið út eins og hressir dótakallar. Og tónlistin lauflétt dönsk rafpoppsveifla. Frábær endurkoma ApparatsLaugardagskvöldið hófst á bestu nýju sveitinni sem ég sá á Réttum, Nolo. Þetta var Gogoyoko kvöld og alveg við hæfi að Nolo spiluðu þar enda fyrstu Gogoyoko-stjörnurnar. Fínar lagasmíðar hjá þeim og Þeir hafa alveg sitt sánd. Og flottar söngraddir. Á Grand rokk var Rökkurró að spila sitt ljúfa popp og gerði ágætlega. Fullt af nýjum lögum. Síðan tók einherjinn Ljósvaki við. Bæði efnilegur og forvitnilegur ef við tökum mið af tveimur fyrstu lögunum sem hann spilaði. Hápunktur kvöldsins var svo auðvitað endurkoma Orgelkvartettsins Apparat á Nasa. Apparatið er frábær hljómsveit og alveg kjörin til þess að trylla múginn. Apparatið stóð undir væntingum þó að það hefði verið gaman að fá að heyra Stereo Rock & Roll líka. Og enn var troðfullt á Nasa. Undarleg tímasetningÁ heildina litið má segja að þessar fyrstu Réttir hafi tekist vel. Það var fullt af flottri tónlist í boði, framkvæmdin tókst yfir það heila mjög vel og flestir tónleikastaðanna voru fullir þegar það leið á kvöldin. Hápunkturinn fyrir mig var föstudagskvöldið. Það var fullkomið.Samt er nokkrum spurningum ósvarað varðandi Réttirnar. Heldur einhver í alvöru að það sé eitthvert vit í því að hafa tvær tónlistarhátíðir með yfir hundrað hljómsveitum með þriggja vikna millibili í Reykjavík? Og er það endilega góð hugmynd að hafa maraþontónlistarveislu einmitt á þessum fáu dögum sem það er hægt að sjá almennilegar kvikmyndir í borginni? Það er að sönnu aldrei of mikið af tónlist, en er þessi tímasetning ekki eitthvað undarleg?
Mest lesið „Best að vera allsber úti í náttúrunni“ Tíska og hönnun Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Lífið „Pabbi minn vakir yfir mér“ Lífið Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Lífið Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Lífið Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Lífið Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni Lífið Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Lífið Tímalausar og fallegar brúðargjafir Lífið Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Lífið Fleiri fréttir Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Krakkatían: Tölur, mýs og tónlist Julian McMahon látinn Var orðið að spurningu um líf og dauða Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sumarlegt grillsalat að hætti Hildar Rutar Umboðsmaður Jenner lést af slysförum „Þvílíkur fílingur bara“ „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Sjá meira