Kuldakast í Skagafirði 24. júlí 2009 10:33 Mynd/Feykir.is
Það var kuldalegt í morgunsárið þegar íbúar Skagafjarðar vöknuðu en þá blasti við þeim snjór í fjöllum samkvæmt Feykir.is. Í gær snjóðaði á Hveravöllum en ekki var sýnilegur snjór þar í morgun. Á morgun má gera ráð fyrir smá súld en að öðru leyti að birti til og verða skaplegra verður. En hér fyrir neðan er spá Einars Sveinbjörnssonar fyrir helgina. Föstudagur 24. júlí: Sérlega kalt loft yfir landinu og ekki nema 3 til 7 stiga hiti á landinu í morgunsárið. Lítilsháttar rigning á norðanverðum Vestfjörðum og sums staðar vestantil á Norðurlandi og eins með suðausturströndinni þegar kemur fram á daginn. Skýjað að mestu, en þó bjart á Suðurlandi. Ekki ólíklega kröftugar síðdegisskúrir á þeim slóðum. N 5-10 m/s vestantil á landinu, en annars lægir og hægur vindur af NV og V víðast hvar. Hiti 10-15 stig syðra þegar best lætur. Laugardagur 25. júlí: Smá súld á Ströndum og annesjum norðanlands, en annars að mestu þurrt og léttskýjað a.m.k. framan af degi. Einnig er gert ráð fyrir úrkomu þegar líður á daginn við utanvert Snæfellsnes og á sunnanverðum Vestfjörðum og minniháttar lægðardragi á þeim slóðum. Áfram verður fremur kalt í lofti miðað við árstímann og gætu skúraský því hæglega hrannast upp í lofti. Vindur verður hægur og víða hafgola. Hiti 8 til 14 stig að deginum, einna hlýjast í uppsveitum Suðurlands. Gera má ráð fyrir að hitinn fari niður í 1 til 2 stig um nóttina á þeim stöðum þar sem lítið verður um ský og jafnvel frost á hálendinu.
Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fleiri fréttir Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar þurfa að láta í minnipokann fyrir rigningunni Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Sjá meira
Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar þurfa að láta í minnipokann fyrir rigningunni