Össur sendir bréf til 1.400 breskra þingmanna 12. maí 2009 16:24
Sendiherra Íslands í London hefur, að beiðni Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra, sent öllum þingmönnum breska þingsins bréf þar sem brugðist er við skýrslu fjármálanefndar breska þingsins, sem út kom í apríl sl. Alls er um tæplega 1400 bréf að ræða, en þingmennirnir eru 646 í neðri deild og 738 í efri deild. Lokið var við útsendingu bréfanna í síðustu viku. Í tilkynningu segir að í bréfi Sverris Hauks Gunnlaugssonar sendiherra er farið yfir viðbrögð Íslands við skýrslu bresku þingnefndarinnar. Þar kemur fram að íslensk stjórnvöld taki sérstaklega undir með nefndinni að með beitingu bresku hryðjuverkalöggjafarinnar til að frysta eignir Landsbankans 8. október sl. hafi breska ríkistjórnin gerst beinn þátttakandi á markaði í því efnahagslega fárviðri sem þá gekk yfir Ísland, og að ekki sjái enn fyrir enda afleiðinga þess. Í bréfinu er minnt á hin sterku tengsl sem hafa verið á milli landanna um langt skeið en jafnframt vakin athygli á að núverandi ástand varpi dökkum skugga á þau. Gerð er grein fyrir því hvernig íslenskri þjóð þyki gróflega að sér vegið með beitingu hryðjuverkalöggjafarinnar. Íslendingar hafi talið sig til nánustu bandamanna Breta á flestum sviðum en hafi nú verið stimplaðir hryðjuverkamenn af þeim síðarnefndu. Kröfur Íslands um afléttingu frystingarinnar eru ítrekaðar og vakin athygli á mikilvægi þess fyrir samskipti þjóðanna. Þá er bent á vilja Íslands til samstarfs um endurskoðun fjármálalöggjafar Evrópu enda hafi núgildandi regluverk magnað vandamál Íslands. Að lokum er vakin athygli á því að á síðustu vikum hafa komið fram vísbendingar um að verulega muni greiðast uppí þann hluta krafna innistæðueigenda sem ekki hafi þegar verið mætt af innistæðutryggingum.
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Sjá meira