Innlent

VR fundur hófstilltur - skuggastjórnin hélt sig til hlés

Kristinn Örn Jóhannesson, formaður VR, sagði að fundurinn hefði gengið vel.
Kristinn Örn Jóhannesson, formaður VR, sagði að fundurinn hefði gengið vel.

„Þetta var hófstilltur fundur," segir Kristinn Örn Jóhannesson, formaður VR en félagsfundur var haldin í kvöld að beiðni félagsmanna á Hótel Loftleiðum. Að sögn Kristins var aðallega um upplýsingafund að ræða og var hvergi hvikað frá fundardagskrá.

„Það var farið í gegnum dagskránna eins og hún var auglýst," segiir Kristinn en í því fólst að segja félagsmönnum frá stöðu kjarasamninga, samstarf VR við ASÍ og svo almennt farið yfir stöðu efnahagsmála.

„Þetta fór vel fram," segir Kristinn Örn en einn stjórnarmanna VR, Ragnar Þór Ingólfsson hefur undanfarið birt póstsamskipti svokallaðrar „skuggastjórnar VR" á bloggi sínu. Sami hópur knúði á fundinn en virðist hafa haldið sér til hlés á honum.

Kristinn skýtur á að tæplega tvöhundruð manns hafi verið á fundinum og að hann hafi gengið nokkuð ágætlega.

„Næsta skref er bara að funda með Samtökum Atvinnulífsins og ASÍ í fyrramálið um þá stöðu sem er kominn upp vegna ákvörðunar Seðlabanka Íslands," segir Kristinn að lokum og vitnar þá í stýrivaxtalækkun sem verkalýðsfélögunum þykir ganga of skammt.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×