Kveðja hundana sína grátandi 4. júní 2009 03:00 Óskilahundarnir Hvolparnir fjórir sem skildir voru eftir fyrir utan Kattholt. Auk þeirra eru tveir fullorðnir hundar í óskilum á Leirum. Hvorugur þeirra verður sóttur að sögn Hreiðars Karlssonar sem rekur hundahótelið. Með honum á myndinni er Kolbrá Úlfarsdóttir. fréttablaðið/vilhelm
Sjö hundar voru í óskilum á hundahótelinu á Leirum í gær. Sumir hafa hreinlega ekki efni á að leysa hundana út og koma til að kveðja þá. Aðrir fara þá leið að losa sig við hunda sína. „Sumir koma hér til þess að kveðja hundana sína og fara grátandi út. Fólk á einfaldlega ekki þá peninga sem til þarf,“ segir Hreiðar Karlsson, sem rekur hundahótelið að Leirum á Kjalarnesi. Sjö óskilahundar voru á hundahótelinu á Leirum í gær. Fimm þeirra höfðu verið skildir eftir við Kattholt, fullorðinn hundur, sem var bundinn við staur þar fyrir utan og fjórir litlir hvolpar hans í pappakössum. Lögreglan í Reykjavík hafði fengið tilkynningu um hund sem var bundinn fyrir utan Kattholt. Sigríður Heiðberg, forstöðumaður Kattholts, fór á staðinn og sá þá fjóra pappakassa og í hverjum þeirra var um það bil þriggja mánaða hvolpur. „Dýrin voru mjög glöð þegar þau voru tekin upp úr kössunum, litlu skinnin, utan einn sem var í loftlausum kassa,“ lýsir Sigríður aðkomunni. „Lögreglumenn komu á staðinn og aðstoðuðu mig með dýrin og vil ég þakka þeim alla hlýju er þeir sýndu þessum yfirgefnu hundum.“ Auk hunda sem fólk reynir auðsjáanlega að losa sig við með svona ógeðfelldum hætti eru aðrir sem sleppa frá eigandanum af einhverjum ástæðum, eru handsamaðir og fluttir til skammtímadvalar að Leirum. Lendi óskráður hundur þar þarf að greiða handsömunar- og skráningargjald að upphæð hátt í 40 þúsund krónur, að sögn Hreiðars. Eigendurnir viti af hundunum þarna en geti ekki leyst þá út. Hann segir sum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu ósveigjanleg í samningum við hundaeigendurna. Sveitarfélögin greiða uppihald óskilahunds á hundahótelinu í sjö daga. Ef honum er enn óráðstafað eftir þann tíma er látið svæfa hann. „Ef hundurinn er mjög góður þá er hann bara áfram hér á minn kostnað þar til hann fær heimili,“ segir Hreiðar. „Það gerist í mörgum tilvikum. Ég vel þá heimili sem uppfyllir ákveðin skilyrði. Það er engin sjálfsafgreiðsla á óskilahundum hér þótt sumir haldi það og telji sig jafnvel geta pantað ákveðnar tegundir. Það er allt á góðu nótunum, en óskilahundunum á þó eftir að fjölga, sýnist mér. Þetta er rétt að byrja,“ segir Hreiðar. jss@frettabladid.is
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi Sjá meira