Innlent

Telja um fyrirslátt að ræða

rósa guðbjartsdóttir
rósa guðbjartsdóttir

Fyrri umræða um ársreikninga Hafnarfjarðarbæjar átti að fara fram á bæjarstjórnarfundi á þriðjudag. Bæjarstjóri bar hins vegar upp breytingatillögu og frestaði umræðunni þar sem ekki hafi náðst að undirrita þá. Ástæðuna sagði hann vera að annar skoðunarmannanna hefði verið erlendis.

„Við sjálfstæðismenn teljum um fyrirslátt að ræða þar sem varamaður skoðunarmanns var aldrei boðaður á fund,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði.

Rósa segir að enn hafi reikningar hafnarstjórnar ekki verið afgreiddir í hafnarstjórn, og ekki heldur framkvæmdasviðs.

„Þetta eru B-hluta fyrirtæki sem verða að fylgja ársreikningum, þannig að ekki er ólíklegt að sú staðreynd hafi haft mikið um það að segja að endurskoðendur hafa ekki getað skrifað upp á ársreikninginn og því málinu vísað frá hér í dag og frestað,“ segir Rósa.

Hafnarfjarðarbær birti tilkynningu á föstudag þar sem sagði að tap bæjarins á árinu 2008 næmi 4,2 milljörðum króna. Skoðunarmenn reikninga höfðu hins vegar ekki ritað undir þetta, eins og lög boða.

Í 72. gr. sveitarstjórnarlaga segir að ársreikningur sveitarfélags skuli fullgerður, endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu í sveitarstjórn fyrir lok aprílmánaðar. - vsp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×