Innlent

Togari strandaði við Sandgerði

Varðskipið Týr er kominn að strandskap.
Varðskipið Týr er kominn að strandskap.

Skuttogarinn Sóley Sigurjóns tók niðri í innsiglingunni í Sandgerði í morgun. Björgunarsveitin Sigurvon í Sandgerði var kölluð út og er hún nú á strandstað ásamt lögreglumönnum af Suðurnesjum. Týr, varðskip Landhelgisgæslunnar, var einnig kallað að strandstað auk björgunarskips frá Landsbjörgu og á að freista þess að draga skipið á flot á ný á flóði klukkan hálf fimm.

Að sögn lögreglu er mönnunum um borð lítil hætta búin en hluti þeirra hefur verið fluttir í land. Skipið hallar þó töluvert, eða um 35 gráður að sögn Landhelgisgæslunnar en það er vel skorðað og því er lítið hætta á því að það hallist meira en orðið er.


















Fleiri fréttir

Sjá meira


×