Ríkiskaup sögð sveigja reglur 4. júní 2009 07:00 Sævar Freyr Þráinsson. „
Við munum að sjálfsögðu kæra áður en þessi samningur kemst á," segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, um þá ákvörðun Ríkiskaupa að semja við Vodafone um fjarskiptaþjónustu fyrir Landspítalann. Um er að ræða þriggja ára samning um fjarskiptaþjónustu fyrir Landspítala - háskólasjúkrahús. Síminn bauð 227 milljónir króna í hinn umdeilda verkhluta en Vodafone (Og fjarskipti ehf.) 185 milljónir, eða 42 milljónum minna. Sævar segir bjóðendur hafa átt að sýna fram á jákvæða eiginfjárstöðu. Það hafi Vodafone ekki getað gert enda verið með neikvæða eiginfjárstöðu upp á 1.200 milljónir króna. „Leikreglur verða að vera skýrar og eftir þeim farið. Við erum ósátt við að ríkisfyrirtækið Vodafone fái þennan samning með því að menn sveigi reglur," segir Sævar og vísar til þess að stærstu eigendur Teymis, móðurfélags Vodafone, eru ríkisfyrirtæki. Í bréfi Júlíusar S. Ólafssonar, forstjóra Ríkiskaupa, til Símans útskýrir hann skilmála um eiginfjárstöðu. „Í þessari grein er gerður sá fyrirvari að sé eigið fé bjóðanda ekki jákvætt þegar tilboðum er skilað sé heimilt að gera undantekningu verði eigið fé jákvætt við undirritun samnings sem í þessu tilviki er stefnt að af hálfu bjóðanda að verði í byrjun júlí. Samkvæmt þessari grein er ekki hægt að líta svo á að tilboð Og fjarskipta uppfylli ekki útboðskilmála," segir forstjóri Ríkiskaupa. Í dag greiða kröfuhafar Teymis atkvæði um frumvarp til nauðasamninga. Samkvæmt því eignast ríkisfjármálafyrirtækin Landsbankinn, Straumur og Íslandsbanki samtals 67 prósent í Teymi. „Á sama tíma og reglur eru sveigðar í þágu Vodafone er almenningur að greiða tæplega 31 þúsund milljónir til þess að bjarga því að þetta fyrirtæki og önnur fyrirtæki Teymis geti starfað áfram á markaði," segir Sævar sem kveður þetta fela í sér gríðarlegt ójafnræði gagnvart öðrum fjarskipta- og upplýsingatæknifyrirtækjum. „Þótt þjóðfélagið gangi nú í gegnum erfiða tíma og það þurfi að hjálpa fyrirtækjum megum við ekki víkja frá þeim grundvallarreglum sem halda þjóðfélaginu gangandi," segir forstjóri Símans. - gar
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Innlent Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Innlent Fleiri fréttir Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Sjá meira