Forsetinn ræddi nýtingu hreinnar orku við forseta Kýpur 4. júní 2009 15:16 Ólafur Ragnar Grímsson MYND/GVA
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson átti í dag fund með Dimitris Christofias forseta Kýpur. Á fundinum var rætt um samvinnu smárra þjóða í Evrópu, árangur Kýpur og Íslands við nýtingu hreinnar orku og hugsanlega lausn á langvarandi deilum um skiptingu eyjarinnar en forseti Kýpur lýsti ítarlega tilraunum sínum til að ná samkomulagi við forystusveit tyrkneska minnihlutans sem skapað gæti grundvöll að nýju stjórnskipulagi á Kýpur og tryggt friðsamlega sambúð allra eyjarbúa. Þá fjallaði forsetinn einnig um reynslu Kýpur og annarra smárra þjóða af aðild að Evrópusambandinu. Forseti Íslands sat einnig hádegisverðarboð forseta Kýpur ásamt þjóðhöfðingjum annarra ríkja sem taka þátt í Smáþjóðaleikunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu forsetans. „Forseti Kýpur lýsti áhuga á aukinni samvinnu við Íslendinga, einkum í þróun hreinnar orku. Kýpur hefur náð miklum árangri á þessu sviði og forseti Íslands afhenti landinu alþjóðleg orkuverðlaun fyrir fáeinum árum. Verðlaunin hlaut landið fyrir að hafa aukið hlutfall hreinnar orku í orkubúskap sínum umfram aðrar þjóðir. Forseti Íslands átti einnig viðræður við forystumenn í orkumálum eyjarinnar, m.a. um aðgerðir til að hvetja heimili og fyrirtæki til orkusparnaðar og hvernig smærri ríki einsog Ísland og Kýpur geta orðið þróunarvettvangur fyrir rafknúna bíla og umhverfisvæna umferð. Lýsti forseti Íslands aðgerðum Orkuveitu Reykjavíkur á þessu sviði og samvinnu íslenskra stjórnvalda við japanska bílaframleiðandann Mitsubishi. Forseti Íslands hefur heimsótt íslenska íþróttafólkið á Smáþjóðaleikunum á Kýpur og fylgdist með keppni þeirra m.a. í sundi, fimleikum, körfuknattleik, blaki, tennis, júdó, skotfimi og frjálsum íþróttum. Íslenska íþróttafólkið hefur náð afar góðum árangri á leikunum og unnið til fjölda verðlauna. Rúmlega 170 íslenskir þátttakendur eru á leikunum og bauð ÍSÍ forsetahjónunum að sækja leikana en forseti er verndari ÍSÍ."
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Sjá meira