Innlent

Sektaði jólasveina á aðfangadag

Sveinki á hraðferð. Á myndinni er sárasaklaus jólasveinn sem tengist ekki fréttinni beint.
Sveinki á hraðferð. Á myndinni er sárasaklaus jólasveinn sem tengist ekki fréttinni beint.

Sýslumaður Snæfellinga sektaði yfir sextán þúsund ökumenn fyrir hraðakstur í fyrra og aflaði hann mestra tekna fyrir ríkið á þessu sviði á árinu. Meira að segja jólasveinar voru sektaðir á aðfangadag.

Það mætti halda að lögreglumennirnir á Snæfellsnesi væru margfalt duglegri en starfsbræður þeirra annarsstaðar á landinu. Það skýrir þó ekki hinn mikla sektafjölda embættisins heldur þessi tæki hér, hraðamyndavélarnar sem nú eru uppi á níu stöðum á landinu. Í hvert sinn sem menn aka of hratt smellir tækið af þeim ljósmynd og sendir hana svo í tölvurnar í Stykkishólmi.

Þar fara starfsmenn yfir myndirnar, útbúa sektarboð á viðkomandi, og skiptir þá ekki máli hvort þar er á ferð Kertasníkir eða aðrir bræður hans að flýta sér með jólagjafirnar, en þeir voru myndaðir á ólöglegum hraða á aðfangadag, 24. desember, klukkan 12.43, eins og útskriftin sýnir, en við fengum ekki að vita hvort Leppalúði eða einhver annar væri skráður fyrir bílnum.

Sýslumaðurinn Ólafur K. Ólafsson, vill þó ekki gera mikið úr sektargróðanum en bendir á að aðalhagnaðurinn felist í færri umferðarslysum.

Störfin við sektarinnheimtuna voru flutt í Hólminn í samræmi við stefnu fyrri ríkisstjórnar um að flutning opinberra starfa út á land en embættið hefur einnig fengið stöðu lögfræðings sem annast umsýslu þjóðlendna. Sýslumaður segir að störf sem þessi sé hægt að vinna hvar sem er í heiminum og hversvegna ekki í Stykkishólmi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×