Innlent

Stolinn Audi Q7 fundinn

Lögreglan fékk ábendingu frá vegfaranda eftir að auglýst var eftir Audi Q7 bifreið í morgun. Billinn fannst síðan nú síðdegis við hús í Efstasundi í Reykjavík.Lögreglan tekur nú bílinn og tekur fingraför. Þjórfurinn er hisnvegar ófundinn.

Fréttastofa lýsti eftir bílnum en honum var stolið fyrir utan einbýlishús í Hafnafirði í morgun. Innbrotsþjófur hafði þá farið inn í húsið í nótt þar sem fimm manna fjölskylda var í fastasvefni. Tók hann fartölvu, myndavél, veski auk bíllykla. Hann ók síðan á brott á bílnum.






Tengdar fréttir

Innbrotsþjófurinn stal Audi Q7 á meðan fjölskyldan svaf

Sigurður Freyr Árnason íbúi í Hafnarfirði fór að sofa klukkan eitt í nótt í einbýlishúsi sínu við Vesturvang í Hafnarfirði. Eiginkona hans vaknað klukkan hálf sex í morgun og uppgötvað þá að það hefði verið brotist inn á heimili þeirra hjóna. Þjófurinn hafði tekið fartölvu, myndavél og veski auk þess sem hússlyklarnir og bíllyklarnir voru horfnir. Fljótlega uppgötvaði Sigurður að Audi Q7 bifreið fjölskyldunnar var horfin og vill hann auglýsa eftir bílnum sem hefur fastanúmerið KM E00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×