Innlent

Hatrömm átök skugganna við nýja stjórn VR

Gunnar Páll Pálsson fyrrverandi formaður VR.
Gunnar Páll Pálsson fyrrverandi formaður VR.

Búist er við átakafundi á félagsfundi VR í kvöld en hann hefst klukkan hálf átta. Nýkjörinn stjórnarmaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson, hefur snúið vörn í sókn og birt tölvusamskipti „VR skugganna" sem eru þeir sem eru á móti nýrri stjórn eða tilheyrðu þeirri gömlu.

Ragnar Þór hefur meðal annars birt póst frá Stefaníu Magnúsdóttur sem var varaformaður VR en var sett af fyrir stuttu þrátt fyrir að eiga ár eftir af varaformannssetunni.

Í póstinum sem Ragnar birtir á bloggi sínu segir hún meðal annars:

„Ég er líka með hugmynd um málefnahóp sem færi í þá vinnu að endurskoða lögin þannig að svona slys gerist aldrei aftur. Fyrst þurfum við að fá inn heilt og almennilegt trúnaðarráð en á næsta aðalfundi verður að breyta lögunum -- en þá verðum við búin að fá "okkar" fólk inn -- þótt það kosti aðrar allsherjarkosningar."

Sjálf kallar hún þessa skipulögðu sellu skuggana.

Það var svo í dag sem Ragnar birti enn önnur póstsamskipti „skugganna". Nú frá Gunnar Böðvarssyni sem ásamt fleirum hafa safnað undirskriftum til þess að krefjast félagsfundarins sem haldin verður í kvöld.

Meðal annars sem hann segir í póstinum, sem var sendur um miðjan maí og birtist á bloggi Ragnars er:

„Eitt sem ég hjó eftir að hann er ekki tilb. í félagsfund og væntanlega gerir ekki ráð fyrir honum. Solveig hringdi inn og var með spurningar sem komu illa við hann, m.a. launin, Gæti verið að hann fari að hugsa eitthvað eftir að hún spurði um félagsfund, en það er bara allt í fina með það.

Ósmekklegar aðdróttanir í garð Gunnars af hendi Bubba aðalega, " fallegi lúserinn minn" og að Gunnar og stjórn hafi slitið sig frá hinum og setið í glerturni.

Jæja þið hafið örugglega hlustað á asnann og við erum bara pirruð og svekt !"

Pósturinn var sendur eftir að formaður VR, Kristinn Örn Jóhannsson, var í viðtali við Bubba á Rás 2.

Félagsfundur VR hefst, eins og fyrr segir klukkan 19:30 og verður á Hótel Loftleiðum. Kristinn fer með sterka stöðu inn á fundinn en hann lækkaði laun sín um 35 prósent í dag og tilkynnti að hann þiggi ekki bílastyrki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×