Aftur þurfti að kalla út frívakt á þyrluna 4. júní 2009 08:00 Tf-Líf Hefur farið tvær ferðir á haf út þar sem kalla þurfti til mannskap á frívakt. Ekki er sjálfgefið að það sé hægt.mynd/Lhg
Tvisvar í þessari viku hefur Landhelgisgæslan þurft að kalla til frívaktir til að fara í björgunarflug á haf út. Dómsmálaráðherra hyggst ræða við forstjóra Landhelgisgæslunnar til að kanna hvort hægt sé að endurskoða leiðir til sparnaðar hjá þyrlusveitinni. „Landhelgisgæslan þarf að hagræða og reksturinn er núna með þeim hætti sem forstöðumaðurinn lagði til við ráðuneytið. Þetta tilvik gefur okkur tilefni til að fara betur ofan í það hvernig hægt sé að hagræða í stofnuninni með öðrum hætti því mín skoðun er sú að björgunarþjónustan verður að vera með forsvaranlegum hætti,“ segir Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra. Ragna vill ekki tjá sig sérstaklega um þær aðstæður sem komu upp á mánudagsnótt, þegar kalla þurfti til menn á frívakt til að hægt væri að fara í björgunarflug til að sækja fársjúka 67 ára gamla konu á portúgalskt farþegaskip, statt rúmar 80 sjómílur suður af Vestmannaeyjum. Staðfest hefur verið að um líf og dauða var þar að tefla. Í fyrrinótt þurfti svo í annað sinn á jafn mörgum dögum að kalla til frívakt til að fara í björgunarflug á haf út. Í því tilviki var um grænlenska togarann Polar Nanoq að ræða þar sem einn úr áhöfninni var talinn vera með innvortis blæðingar. Ragna hyggst ræða við Georg Lárusson, forstjóra LHG, vegna málsins og biðja hann um tillögur um hvernig hægt sé að hagræða með öðrum hætti en fækka þyrluvöktum úr sex í fimm, en vegna niðurskurðarins er ekki mögulegt að halda úti þeirri öryggisþjónustu sem hingað til hefur verið talin lágmark. „Auðvitað verður Landhelgisgæslan að halda sig innan fjárheimilda, en sjófarendur verða að búa við öryggi og ekki spurning um neitt annað,“ segir Ragna. Georg hefur ítrekað bent á hversu starfsemi LHG er viðkvæm fyrir breytingum á gengi krónunnar og sveiflum í eldsneytisverði. Landhelgisgæslunni sé nauðugur sá kostur að draga saman seglin sem óumflýjanlega hefur áhrif á björgunargetu. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hefur sagt í fjölmiðlum að auknar fjárframlögur til LHG komi ekki til greina í því efnahagsástandi sem þjóðin glímir við.svavar@frettabladid.is
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi Sjá meira